Sérhönnuð tannlæknastofa sem mætir kröfum framtíðarinnar
Bylting í tannlækningum á Suðurnesjum hjá Aðalbrosi sem opnaði á Aðaltorgi í Reykjanesbæ í vor. Ein öflugasta tannlæknastofa landsins.
Tannlæknastofan Aðalbros opnaði í maí í nýju og glæsilegu sérhönnuðu húsnæði á Aðaltorgi í Reykjanesbæ. Með flutningum og sameiningu þriggja tannlæknastofa er Aðalbros orðin ein öflugasta tannlæknastofa landsins þar sem áhersla er lögð á nútímatækni, forvarnir og hlýlegt andrúmsloft.
Við settumst niður með tveimur af eigendum stofunnar, þeim Þorvaldi H. Bragasyni og Benedikt Jónssyni, og ræddum um nýju stofuna, stökkbreytingu í tækni og þróun á tannheilsu landsmanna. Þriðji eigandinn er Theódór Friðjónsson tannlæknir og eiginkona hans María Guðjónsdóttir.
Fyrsta sérhannaða tannlæknastofan á svæðinu
Þeir þremenningar hófu samstarf nýlega en höfðu allir haft starfsemi í Reykjanesbæ í all mörg ár, Benedikt lengst en Theódór tók við rekstri Jóns Björns Sigtryggssonar tannlæknis fyrir nokkrum árum á Tjarnargötunni, sem hélt þó áfram hjá honum en er að hætta störfum. Þorvaldur hitti þá félaga á 3. hæðinni þar og fljótlega lágu leiðir og hugmyndir þeirra saman um nýtt framtíðar húsnæði. Eftir all nokkrar pælingar og umræður kom hugmynd sem fæddist í stólnum hjá viðskiptavini Þorvaldar sem bauð þeim húsnæði á Aðaltorgi í Reykjanesbæ.
„Hvað mig varðar þá var ég í húsnæði á Skólavegi 10 sem var byggt fyrir 53 árum síðan sem íbúðarhúsnæði,“ segir Þorvaldur. „Það var svolítið takmarkað hvað var hægt að gera þar en ég var þar frá 2007 til 2022. En svo seldi ég húsnæðið og leigði á Tjarnargötu ská á móti Benna og Tedda. Þá fór boltinn að rúlla.“
Þegar ákveðið var að reisa nýtt hús á Aðaltorgi var húsið enn á teikniborðinu og aðeins búið að útlitsteikna það. Tannlæknarnir stukku á tækifærið og komu að hönnuninni frá grunni.
„Ég held ég þori að segja að þetta sé fyrsta tannlæknastofan á Suðurnesjum og jafnvel bara á landinu öllu sem er í raun sérhönnuð sem slík frá grunni,“ segir Benedikt. „Yfirleitt þurfa tannlæknar að mæta með múrbrjót og byrja að brjóta fyrir lögnum. En hér er allt innbyggt frá upphafi.“
Þeir Þorvaldur og Benedikt fara fögrum orðum um samstarfið við Aðaltorg, eigendur hússins, og verktakana sem unnu við uppsetningu tannlæknastofunnar: „Þeir höfðu aldrei byggt tannlæknastofu áður en voru boðnir og búnir að mæta öllum okkar ýtrustu kröfum til að gera þetta vel úr garði. Við erum ótrúlega ánægð með útkomuna.“
Öll þjónusta á einum stað
Með nýja húsnæðinu hefur Aðalbros búið svo um hnútana að sjúklingar þurfa sjaldnast að leita annað eða aka til Reykjavíkur eftir þjónustu.
„Við bjóðum upp á öll þau tæki og tól sem þarf til að sinna nútíma tannlækningum,“ útskýrir Benedikt. „Við sinnum nánast öllu því sem snýr að tannlækningum á stofunni, en einnig erum við með sérfræðinga á okkar snærum ef sérstök tilfelli koma upp.“
Á stofunni starfa tíu tannlæknar og reynslumikið starfsfólk, auk þess sem Ædent, tannsmíðaverkstæði Ævars Péturssonar, er staðsett á sama stað.
„Það er mikill kostur að hafa tannsmiðina á ganginum,“ segir Þorvaldur. „Ef það þarf að bjarga einhverju snögglega þá sparast mikill tími fyrir sjúklinginn.“
Eitt af því sem benda má á er að aðgengi er til fyrirmyndar, auðvelt er fyrir fólk í hjólastól að komast inn og þá er lyfta í húsnæðinu.
Stafræna tæknibyltingin og 3D-röntgentæki
Ykkar starfsævi spannar nokkra áratugi. Hversu mikið hefur tæknin breyst í faginu frá því þið hófuð störf?
Benedikt, reynsluboltinn á stofunni segir breytinguna gríðarlega. „Stutta svarið er að það er nánast ekkert í tannlækningum í dag eins og þegar ég byrjaði. Sérstaklega síðustu ár hefur stafræna tæknin verið algjör lúxus. Að taka mát er bara gjörbreytt ferli. Gömlu góðu mátin sem þurftu að harðna uppi í fólki eru kannski bara 10% af öllum máttökum í dag. Allt hitt er stafrænt, sem er gríðarlega þægilegt bæði fyrir okkur og sjúklinginn.“
Þorvaldur rifjar upp hvernig myndatökur á stofunni hafi verið. „Fyrir rúmlega tíu árum síðan var ég enn að framkalla röntgenmyndir sem voru settar í fixer, þurrkaðar og hengdar upp. Þetta voru litlar myndir, 3x4 sentimetrar. Myndatakan í dag er stafræn og gæðin allt önnur. Í nýja húsnæðinu fengum við loksins pláss fyrir sneiðmyndatæki sem tekur þrívíddarmyndir og breiðmyndir. Það hjálpar okkur gríðarlega við flóknari aðgerðir eins og að setja niður implönt, skoða erfiða endajaxla eða rótfyllingar. Þetta getum við gert samstundis á staðnum án þess að senda fólk í örfá tæki á höfuðborgarsvæðinu.“
Mikil breyting fyrir barnafjölskyldur
Sumum finnst enn ógnvekjandi að fara til tannlæknis og óttast stundum reikninginn. En að sögn Þorvaldar er staðan oft allt önnur en fólk heldur. Sjúkratryggingar koma inn hjá 18 ára og yngri, eldri borgurum og öryrkjum.
„Það eru góðir samningar í gangi hjá Sjúkratryggingum Íslands (SÍ) fyrir eldri borgara, öryrkja og börn,“ segir Þorvaldur. „Fyrir eldri borgara greiða Sjúkratryggingar í flestum tilfellum um 75% af gjaldskrá. Fólk heldur stundum að þetta sé svo dýrt og fer jafnvel erlendis í meðferðir, en áttar sig kannski ekki á því að það er mjög vel komið til móts við það hér heima.“
Einnig náðist stór áfangi upp úr 2015 þegar ákveðið var að börn undir 18 ára aldri fengju tannlæknaþjónustu að fullu endurgreidda (að frátöldu árlegu komugjaldi).
„Þetta breytti öllu fyrir barnafjölskyldur,“ bætir Benedikt við. „Kynslóðin sem er að eignast börn í dag, fólk á aldrinum 25 til 40 ára, hefur notið bestu mögulegu tannlæknaþjónustu og forvarna frá upphafi. Sú kynslóð er með langbestu tennurnar og yfirfærir þær góðu venjur á börnin sín.“
Benedikt í nýju stofunni sinni. Hann hefur starfað hátt í fjóra áraugi í Keflavík.
Áhyggjuefnið flutt yfir á eldri hópana
Hvernig hefur tannheilsa Íslendinga þróast yfir þá áratugi sem þið hafið starfað?
Benedikt lærði í Svíþjóð og hann segir að hann hafi fengið pínulítið sjokk þegar hann kom heim fyrir 36 árum.
„Þegar ég kom heim frá Svíþjóð árið 1990 fékk ég pínulítið sjokk. Það var ofboðslega mikið um tannskemmdir hér miðað við það sem ég hafði kynnst þar. En við tannlæknarnir í Reykjanesbæ, komum í sameiningu á kerfi með skólahjúkrunarfræðingum í bænum þar sem öll börn urðu að velja sér tannlækni og það voru yfir 90% heimtur. Það var mikið framfaraskref.”
Þorvaldur segir að áhyggjuefnið hafi í raun færst til. „Áður fyrr voru það börnin og unga fólkið, en í dag er stór vandi færður yfir á eldri borgara sem eru að koma inn á hjúkrunarheimili og stofnanir. Ólíkt því sem var áður var er stór hópur aldraðra í dag með sínar eigin tennur en ekki falskar tennur. En mikið af þessu fólki hefur ekki líkamlega getu til að bursta sig sjálft. Vegna manneklu á stofnunum er þessum hluta oft ekki sinnt og tannlæknaþjónusta þar er nánast engin. Ef það er brotalöm í kerfinu varðandi tannheilsu á Íslandi í dag, þá er það virkilega þar.“
Á árum áður var algengt að fólk fengi falskar tennur. Er það enn við lýði?
„Við þurfum enn að smíða góma, en stóri munurinn er sá að í dag er hægt að festa þá. Við setjum niður implönt sem virka sem akkeri fyrir gómana þannig að þeir smellast fastir. Það hefur gjörbreytt lífi fólks. Einnig reynum við alltaf að halda í þær tennur sem eftir eru, því þótt þú hafir bara tvær tennur eftir skiptir það öllu máli við að festa góm. Tannlækningar ganga út á lækningar en ekki niðurrif.“
Hlýleiki í fyrirrúmi
Þegar gengið er inn á nýju stofuna á Aðaltorgi mætir gestum stórt fiskabúr, mjúk lýsing, góð hljóðvist og hlýlegt andrúmsloft.
„Við lögðum mikla vinnu í útlit og upplifun. Okkur langaði að þetta væri þægilegur staður að koma á, frekar en köld stofnun,“ segir Þorvaldur. „Börnin dýrka fiskabúrið og við höfum fengið frábær viðbrögð frá viðskiptavinum síðan við opnuðum í vor.“
Að lokum inntum við þá eftir skilaboðum til íbúa á Suðurnesjum:
„Öll okkar vinna byggist á forvörnum,“ segir þeir félagar. „Ráð okkar eru einföld: Það skiptir öllu máli að sinna daglegri tannhirðu með flúortannkremi og tannþræði, og fara reglulega í eftirlit. Þá verða aldrei nein stórslys. Og muna að það er pláss fyrir öll hjá okkur í Aðalbrosi – öll eru hjartanlega velkomin!“

Aðstaðan er glæsileg og þægileg og allt er gert til að viðskiptavinum, börnum og fullorðnum líði vel í Aðalbrosi.

Það fer vel um starfsfólkið á nýja staðnum og sömuleiðis viðskiptavinina í hlýlegri móttöku. Hér eru móttökuritararnir Fjóla Stefánsdóttir og Lilja Þ. Tómasdóttir.

Það er nóg að gera hjá aðstoðarkonum tannlæknanna.

Séð inn í aðstöðu tannsmíðaverkstæðisins þar sem Ævar Pétursson er í forsvari.




