Fréttir

Bæjarstjóri heimsótti Nesfisk
Frá heimsókn bæjarstjórans í Nesfisk. Mynd: Suðurnesjabær.
Fimmtudagur 10. september 2026 kl. 08:13

Bæjarstjóri heimsótti Nesfisk

Fagnaði 40 ára starfsafmæli öflugs bakhjarls í Suðurnesjabæ

Alexandra Jóhannesdóttir, bæjarstjóri Suðurnesjabæjar, heimsótti á dögunum sjávarútvegsfyrirtækið Nesfisk. Í heimsókninni kynnti bæjarstjóri sér starfsemi fyrirtækisins og ræddi við stjórnendur og starfsfólk um daglegan rekstur og stöðu greinarinnar í sveitarfélaginu.

Sérstök ánægja var með að geta notað tækifærið og óskað Nesfiski til hamingju með 40 ára starfsafmæli fyrirtækisins á árinu, en það hefur um áratugaskeið verið einn af helstu burðarásum atvinnulífs á svæðinu.

„Nesfiskur er eitt af okkar öflugustu fyrirtækjum og skiptir sköpum fyrir atvinnulíf í Suðurnesjabæ. Það var sérstaklega ánægjulegt að fá að samgleðjast fyrirtækinu með þessi merku tímamót, fjörutíu ár í rekstri. Framlag fyrirtækisins til samfélagsins er ómetanlegt,“ segir Alexandra Jóhannesdóttir, bæjarstjóri.

Lykilstoð í samfélaginu

Nesfiskur hefur í gegnum fjóra áratugi lagt mikið af mörkum til að byggja upp blómlegt samfélag í Suðurnesjabæ. Heimsóknin undirstrikar mikilvægi góðs samtals milli sveitarfélagsins og atvinnulífsins, en sjávarútvegur er áfram ein af meginundirstöðum samfélagsins á Suðurnesjum, segir á vef bæjarins.

Bílakjarninn
Bílakjarninn