Sjáðu myndirnar af því sem átti að vera víti
- Þróttur leiðir með einu marki gegn Njarðvík
Þróttur leiðir með einu marki gegn Njarðvík þegar fyrri umspilsleik liðanna í Lengjudeildinni er lokið.
Gestirnir úr Reykjavík höfðu betur, 0–1, á JBÓ-vellinum í dag í leik sem einkenndist af mikilli baráttu, líkamlegri hörku og dramatískum lokamínútum. Mark Sigurðar Egils Lárussonar á 7. mínútu leiksins reyndist eina mark leiksins og tryggði Þrótti mikilvægt forskot fyrir seinni viðureignina. Njarðvíkingar kjósa hins vegar að horfa jákvætt á þetta og sjá Þrótt bara leiða með einu marki þegar blásið verður til seinni leiks liðanna á sunnudaginn.
Leikurinn fór af stað af miklum krafti og strax á 3. mínútu dró til tíðinda þegar Oumar Diouck slapp í gegnum vörn Þróttar. Þórhallur í marki Þróttara kom langt út á móti og stöðvaði hann, en heimamenn vildu fá brot og rautt spjald án þess að dómarinn samþykkti þær kröfur.
Einungis fjórum mínútum síðar kom eina mark leiksins. Aron Snær Ingason sótti upp völlinn og lagði boltann yfir á fjærstöngina þar sem Sigurður Egill mætti og stýrði boltanum örugglega í netið, 0–1.
Eftir markið einkenndist fyrri hálfleikur af mikilli baráttu á miðjunni. Njarðvíkingar ógnuðu helst úr föstum leikatriðum og fékk Felix Lima Santos meðal annars hættulegan skalla yfir markið. Þróttarar voru nærri því að bæta við marki á 31. mínútu þegar Aron Snær nýtti sér hik í vörn heimamanna, en Guy Smit varði meistalega í marki Njarðvíkur.
Síðari hálfleikur var framhald af þeim fyrri þar sem mikið gekk á. Bæði lið fengu tækifæri til að breyta stöðunni; Smit þurfti oft að reyna á sig í marki Njarðvíkur og Þórhallur varði frábærlega frá Diouck á 68. mínútu þegar sóknarmaðurinn fékk mikið dauðafæri af stuttu færi.
Undir lok leiksins færðist mikill hiti og spenna í viðureignina. Heimamenn sóttu án afláts og kröfðust bekkur og leikmenn Njarðvíkur vítisspyrnu í tvígang á lokakaflanum eins og sjá má meðal annars í myndasafni með fréttinni, ásamt því að vera afar ósáttir við ákvarðanir dómara leiksins. Heimamenn fengu síðan gullið tækifæri til að jafna í uppbótartíma þegar varnarmenn Þróttar hentu sér fyrir öflugt skot innan teigs og næsta skot í kjölfarið fór hárfínt framhjá stönginni.
Gestirnir úr Laugardalnum héldu hins vegar út allt til flautað var til leiksloka og fögnuðu mikilvægum sigri, á meðan heimamenn máttu þola svekkjandi naumt tap. Liðin mætast í síðari leiknum á sunnudaginn.






