Blue Carrental
Blue Carrental

Íþróttir

Risastór leikur í Njarðvík síðdegis gegn Þrótti
Miðvikudagur 9. september 2026 kl. 12:48

Risastór leikur í Njarðvík síðdegis gegn Þrótti

Njarðvíkingar leika í dag, miðvikudaginn 9. september, gegn Þrótti í undanúrslitunum Lengjudeildar karla. Leikurinn er kl. 17:00 í Njarðvík. Seinni leikurinn er í höfuðborginni á sunnudag kl.16.15. Þetta er annað árið í röð sem UMFN er í undanúrslitum Lengjudeildar en liðið tapaði fyrir Keflavík í fyrra og nágrannarnir fóru síðan alla leið upp í Bestu deild. Leikurinn í dag er því risastór og mikilvægur fyrir Njarðvík.

Njarðvíkingar enduðu í 5. sæti Lengjudeildar eftir 2-1 sigur á toppliði Aftureldingar og leika í úrslitakeppni um laus sæti í Bestu deild karla.

„Grillaðir hamborgarar, kaldir drykkir svo um að gera mæta og taka kvöldmatinn á JBÓ Vellinum.

Mætum græn og klár að styðja okkar menn til sigurs,“ segir í tilkynningu frá Njarðvík.

Bílakjarninn
Bílakjarninn