KSK eignir
KSK eignir

Íþróttir

Blue Car Rental og Keflavík efla samstarfið
Miðvikudagur 9. september 2026 kl. 12:20

Blue Car Rental og Keflavík efla samstarfið

Blue Car Rental og knattspyrnudeild Keflavíkur hafa endurnýjað og eflt samstarf sitt með nýjum og umfangsmeiri samningi. Samstarfið byggir á sterkum grunni og sameiginlegri trú á mikilvægi öflugs íþróttastarfs fyrir börn, ungmenni og samfélagið í Reykjanesbæ.
Tengsl BLUE við knattspyrnuna í Keflavík ná langt aftur. Fyrirtækið hefur um árabil verið einn öflugasti bakhjarl deildarinnar og stutt við starfið allt frá yngstu iðkendum til meistaraflokka. Þar á meðal hefur BLUE stutt við Bláa liðið, verkefni sem hófst árið 2016 með það að markmiði að skapa ungum og metnaðarfullum iðkendum fleiri tækifæri til æfinga og framfara.

Samstarfið á sér jafnframt sterkar persónulegar rætur. Magnús Sverrir Þorsteinsson, einn eigenda BLUE, ólst sjálfur upp innan félagsins og lék um árabil með Keflavík. Stuðningurinn snýst því ekki aðeins um sýnileika vörumerkisins heldur einnig um að gefa til baka til félags og samfélags sem hefur mótað fólk innan fyrirtækisins og skapað ótal dýrmætar minningar.

„Keflavík hefur gefið mér ótrúlega mikið og margar af mínum bestu minningum tengjast félaginu. Fyrir okkur hjá BLUE er þetta því einfaldlega leið til að gefa til baka. Það er okkur hjartans mál að styðja við starfið og iðkendur í Keflavík og við erum mjög stolt af því að halda áfram með félaginu,“ segir Magnús Sverrir.

Samstarf sem styrkir umgjörðina

Öflugt íþróttastarf verður ekki til af sjálfu sér. Að baki því stendur stór hópur sjálfboðaliða, þjálfara, starfsfólks, foreldra og stuðningsfólks sem leggur sitt af mörkum alla daga. Með áframhaldandi samstarfi vill BLUE styðja við þessa mikilvægu umgjörð og leggja sitt af mörkum til þess að knattspyrnudeild Keflavíkur geti áfram skapað metnaðarfullt og jákvætt umhverfi fyrir iðkendur á öllum aldri. Árangurinn í ár veitir þar að auki svo sannarlega innblástur og ástæðu til frekara samstarfs.

„Stuðningur BLUE hefur um árabil skipt knattspyrnudeild Keflavíkur miklu máli. Hér er ekki aðeins um að ræða öflugan styrktaraðila heldur samstarfsaðila sem þekkir félagið, skilur samfélagið og hefur raunverulegan áhuga á því starfi sem hér fer fram. Með áframhaldandi og auknu samstarfi getum við styrkt umgjörðina enn frekar og skapað fleiri tækifæri fyrir iðkendur okkar, frá yngstu flokkunum og upp í meistaraflokka. Við erum afar stolt og þakklát fyrir að hafa BLUE áfram með okkur“ segir Ragnar Aron Ragnarsson, framkvæmdastjóri knattspyrnudeildar Keflavíkur.
Bílakjarninn
Bílakjarninn