Óvissa um skólaframkvæmdir
Beðið ákvörðunar um áframhald í Myllubakkaskóla og Holtaskóla
Áætlun um gagngerðar endurbætur á Myllubakkaskóla og Holtaskóla var til umræðu undir lið umhverfis- og framkvæmdaráðs á síðasta fundi bæjarstjórnar Reykjanesbæjar. Verktakar hafa lokið við samþykkta verkhluta ársins 2026 mánuði á undan áætlun og liggur nú fyrir ósk um að flýta verkþáttum sem áttu að fara fram á árinu 2027.
Guðný Birna Guðmundsdóttir, bæjarfulltrúi Samfylkingar, hafnaði ásökunum um að framkvæmdirnar hefðu verið vanfjármagnaðar af fyrri meirihluta og sagði að forgangsraðað hefði verið af varkárni út frá því fjármagni sem bærinn réði við hverju sinni.
„Í fjárfestingaráætlun þessa árs voru 1.850 milljónir og það var lögð lykiláhersla á þrjú verkefni sem þurfti að teygja. Við framkvæmum miðað við það fjármagn sem við höfum á árinu,“ sagði Guðný Birna.
Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir, bæjarfulltrúi Framsóknarflokks, bætti við að minnihlutinn styddi að flýta framkvæmdunum ef reksturinn bæri það:
„Komi það í ljós á þessum tímapunkti að rekstur sveitarfélagsins beri aukið fjármagn í uppbyggingarverkefni umræddra grunnskóla, munum við að sjálfsögðu samþykkja það.“
Vilhjálmur Árnason bæjarstjóri sagði að gagnrýni meirihlutans lyti ekki að skólastarfinu sjálfu heldur vinnubrögðum við áætlanagerð.
„Málið snýst einfaldlega um það að það er ekki hagkvæmt í neinni framkvæmd að vita ekki í upphafi, áður en lagt er af stað, hver heildarkostnaðurinn er og hvernig framkvæmdin er fjármögnuð til enda. Þar er peningunum að blæða og það skapar óvissu,“ sagði Vilhjálmur.









