Mannlíf

Ilmur og list mætast í Keflavík
Fimmtudagur 3. september 2026 kl. 18:51

Ilmur og list mætast í Keflavík

Íslenska ilmmerkið Arolé heldur sýningu ásamt listakonunni Elísabetu Ásberg á Park Inn by Radisson Keflavík við Hafnargötu 57, þar sem ilmur og myndlist mætast í sameiginlegri upplifun.

Arolé er í eigu og uppbyggingu þeirra Hilmis Ásbergs Björnssonar, Elíasar Uche Elíassonar og Hilmars Goða Hilmarssonar. Þeir hafa unnið saman að þróun merkisins, ilmanna og heildarhugmyndarinnar á bak við Arolé.

Optical Studio - 5. sept
Optical Studio - 5. sept

Fyrir Hilmi hefur sérstaka þýðingu að kynna Arolé í Keflavík. Hann ber Ásberg-nafnið, sem á sér sterkar rætur á Suðurnesjum, og verður sýningin haldin ásamt frænku hans, listakonunni Elísabetu Ásberg.

„Það er mjög gaman fyrir mig að fá að koma með Arolé til Keflavíkur. Ég er stoltur af tengingunni minni hingað og því að bera Ásberg-nafnið. Að fá svo að gera þetta með Elísabetu og tengja saman hennar list og það sem við þrír höfum verið að byggja upp með Arolé gerir sýninguna sérstaklega persónulega,“ segir Hilmir Ásberg Björnsson.

Arolé hélt sinn fyrsta viðburð á Menningarnótt í Reykjavík, þar sem gestum gafst tækifæri til að kynnast merkinu, prófa ilmina og kaupa þá í forsölu. Viðtökurnar fóru fram úr björtustu væntingum þeirra félaga og margir gestir tryggðu sér ilmina strax í forsölu.

„Við vissum ekki alveg hverju við áttum von á fyrir fyrsta viðburðinn okkar, en viðtökurnar fóru langt fram úr okkar björtustu væntingum. Það var ótrúlega gaman að sjá áhugann, fá fólk til að prófa ilmina og sjá hversu margir vildu tryggja sér þá í forsölu. Það gaf okkur enn meiri trú á því sem við erum að byggja upp með Arolé,“ segja Elías, Hilmar og Hilmir.

Arolé er íslenskt ilmmerki sem vinnur með ilm sem hluta af daglegum stíl og upplifun. Ilmir merkisins eru framleiddir í Grasse í Suður-Frakklandi, sem hefur lengi verið þekkt sem ein helsta miðstöð ilmgerðar í heiminum.

Merkið hefur þróað þrjá einkennisilmi í formi roll-on ilmolíu sem borin er beint á húð. Olíurnar eru húðvænar og koma í ferðavænum umbúðum sem auðvelt er að hafa með sér. Á sýningunni verður hægt að kynnast öllum þremur ilmunum og verða olíurnar jafnframt í forsölu þar.

Arolé hefur einnig þróað reykelsi sem sækja nótur úr hverjum ilmi fyrir sig. Þannig er ilmheimur hverrar lyktar færður yfir í annað form og verður hægt að upplifa bæði ilmolíurnar og reykelsin á sýningunni. Reykelsin verða einnig til sölu þar.

Á sýningunni verður hægt að upplifa ilmi Arolé samhliða verkum Elísabetar. Hugmyndin er að skapa rými þar sem ólík skynfæri vinna saman og þar sem ilmur og myndlist geta kallað fram stemningu, tilfinningar og minningar.

„Okkur langaði að gera eitthvað sem væri meira en hefðbundin vörukynning. Ilmur getur haft mjög sterk áhrif á tilfinningar og minningar og okkur fannst því spennandi að setja hann í samtal við myndlist. Með sýningunni viljum við búa til upplifun þar sem fólk getur bæði skoðað verkin og kynnst ilmheimi Arolé á sama tíma,“ segja Elías, Hilmar og Hilmir.

Elísabet Ásberg hefur um árabil unnið að fjölbreyttri myndlist og skúlptúrgerð og sýnt verk sín bæði hér heima og erlendis. Á sýningunni í Keflavík mætast því tveir ólíkir skapandi heimar – myndlist Elísabetar Ásberg og ilmheimur Arolé – í sameiginlegu rými.

Sýningin verður haldin á Park Inn by Radisson Keflavík, Hafnargötu 57 í Keflavík.

Bílakjarninn
Bílakjarninn