Húsin segja söguna
Byggðasafn Reykjanesbæjar býður upp á létta og fræðandi arkitektúrgöngu um elsta hluta Keflavíkur sunnudaginn 6. september frá klukkan 11:00 til 12:30.
Jón Stefán Einarsson arkitekt leiðir gönguna sem hefst við Duus safnahús og liggur um Vallargötu og Hafnargötu.
Þátttakendur fá tækifæri til að lesa sögu bæjarins úr húsunum, götunum og smáatriðum í umhverfinu.
Inn í frásögnina fléttast skemmtilegar sögur af fólki og bæjarlífi, svo sem af bíói í gömlu salthúsi, húsum byggðum úr Jamestown-timbri og brunninum sem gaf Brunnstíg nafn sitt. Þátttaka í göngunni er ókeypis og eru allir hjartanlega velkomnir.









