KSK eignir
KSK eignir

Viðskipti

Nýtt líf í Gömlu búð
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
miðvikudaginn 2. september 2026 kl. 11:10

Nýtt líf í Gömlu búð

Hugmyndin að „nýrri“ Gömlu búð, einu af elstu húsum Keflavíkur, átti sér upptök í brauði. Það sem hófst sem heimabakstur í Covid-faraldrinum hefur á síðustu árum þróast í mun stærri hugmynd. Kaffihús, veitingastað, sælkeraverslun og samfélags rými þar sem fólk getur komið saman, notið góðs matar og kaffis og einfaldlega gefið sér tíma til að vera. Að baki Gömlu búð standa þær Sæunn Alda og Arndís Lára, báðar ættaðar af Suðurnesjum og með sterka tengingu við samfélagið. Leiðir þeirra lágu saman fyrr á þessu ári í gegnum sameiginlega vinkonu og fljótlega kom í ljós að þær deildu sömu sýn á það sem þær vildu skapa.

Ný tækifæri í Reykjanesbæ

Arndís er nýflutt aftur á Suðurnesin eftir að hafa búið á Höfn síðustu ár ásamt fjölskyldu sinni, þar sem hún rak kránna Hafið. Þegar ættarhúsið hennar fór á sölu varð heimflutningurinn að veruleika og nýtt tækifæri skapaðist.

Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26

Sæunn hafði á sama tíma verið að þróa sína eigin hugmynd. Hún byrjaði að baka brauð í Covid-faraldrinum en fór í fæðingarorlof á sama tíma og margir sneru aftur til vinnu eftir samgöngubann. Heimabaksturinn tók fljótt yfir og áður en hún vissi af var hún farin að baka mörg kíló af brauði fyrir fólk í bænum.

Í gegnum baksturinn varð henni ljóst hversu miklu máli litlu stundirnar í kringum mat og kaffi geta skipt samfélagið. „Gott brauð og kaffibolli eru ekki aðeins matur og drykkur heldur tilefni til þess að fólk hittist, spjalli og njóti samvista. Sú upplifun var einn helsti drifkrafturinn að hugmyndinni um Gömlu búð,“ segir Sæunn og bætir við:

„Upphaflega var þó ekki ætlunin að opna heilt kaffihús. Fyrsta hugmyndin var einfaldlega lítill brauðskúr. Síðan kom kaffið inn í myndina og hugmyndin fór smám saman að þróast í átt að kaffihúsi.“ Fyrir um tveimur árum ákvað Sæunn að setja markmiðið fram með skýrum hætti og sagðist ætla að opna kaffihús. „Þegar Reykjanesbær auglýsti Gömlu búð til leigu sá ég tækifæri sem passaði við þá sýn. Umsókn var send inn og í desember fékk ég þær fréttir að við hefðum fengið húsnæðið.“

Gamla búð verður kaffihús og veitingastaður

Arndís segir að Gamla búð verði kaffihús á daginn og veitingastaður á kvöldin. Á daginn verður hægt að fá nýbakað brauð, kaffi, samlokur, kökur, sætabrauð og annað góðgæti. Þegar kvölda tekur breytist stemningin og boðið verður upp á pizzur og smárétti, þar sem súrdeig verður í mikilvægu hlutverki. Þá verður einnig rekin lítil sælkeraverslun í húsinu með úrvali af góðgæti til að taka með sér heim.

Þótt matur og drykkur séu stór hluti af starfseminni er markmiðið þó ekki eingöngu að reka enn einn staðinn þar sem hægt er að fá sér að borða. Sæunn og Arndís sjá Gömlu búð fyrst og fremst sem samfélagsrými.

„Húsið sjálft hefur þar mikið að segja. Þær lýsa því sem einstaklega sjarmerandi og ljóðrænu rými sem bjóði upp á möguleika til sköpunar og ólíkra viðburða. Ætlunin er að rýmið verði opið fyrir fólk úr samfélaginu, hvort sem það vill vinna þar, hitta vini, koma með prjónana, njóta kaffis í rólegheitum eða einfaldlega sitja með sjálfu sér,“ segir Arndís.

Flutti burt fimmtán ára

Sú sýn á sér einnig persónulegar rætur hjá Sæunni. Fimmtán ára gömul flutti hún úr bænum í litla stúdíóíbúð með frænku sinni með það markmið að sitja sem mest á kaffihúsum. „En samfélagið mitt var ekki þar. Sú þörf hefur ekki horfið með árunum. Aðgengi að kaffihúsi og samfélagsrými er hluti af lífsgæðum.“

Lengi hefur verið kallað eftir kaffihúsi á Suðurnesjum en um leið hefur verið ákveðin tortryggni gagnvart því hvort slík starfsemi geti gengið upp. Sæunn og Arndís telja hins vegar að tíminn sé réttur og að eftirspurnin eftir stað þar sem fólk getur komið saman sé meiri en áður.

Fjölbreytt og lifandi dagskrá

Þær vilja jafnframt að dagskráin í Gömlu búð verði lifandi og fjölbreytt. Áform eru um prjónakvöld, litla tónleika, ljóðalestur, listasýningar, mömmumorgna og aðra viðburði sem geta orðið til í samvinnu við samfélagið. Þær vilja leyfa sér að leika sér með rýmið og sjá hvað gerist þegar fólk fær stað til að koma saman án þess að þurfa endilega sérstakt erindi.

Ljósanótt verður fyrsta tækifærið fyrir bæjarbúa til að kynnast Gömlu búð. Dyrnar verða opnaðar á fimmtudaginn og verður þar boðið upp á fjölbreytta dagskrá. Gunnella heldur uppi stuðinu með partýbingói og einnig verða tónlistaratriði og ljóðalestur. „Við bjóðum uppá brauðsmakk, verðum með til sölu kaffi og kakó og svo verður barinn opinn. Einnig verður hægt að tryggja sér kaffikort og bjórkort í forsölu,“ segir Arndís.

Opnunin um Ljósanótt er tímabundin en aðeins fyrsta skrefið í átt að fullri starfsemi segja þær stöllur. Enn á eftir að breyta viðbyggingu hússins í eldhús og því er nokkur vinna fram undan. Stefnt er að því að Gömlu búð opni dyr sínar formlega í fullum rekstri fyrir desember, ef allt fer eftir óskum

Þær Sæunn og Arndís eru spenntar fyrir verkefninu og vita að nóg er fram undan. Þær eru þó ákveðnar í að láta hugmyndina verða að veruleika.

„Það sem byrjaði með brauði er því orðið að stærri framtíðarsýn, stað þar sem fólk getur komið saman, notið góðs matar og kaffis, tekið þátt í viðburðum eða einfaldlega droppað inn og verið. Okkar von er að Gömlu búð verði ekki aðeins kaffihús eða veitingastaður heldur rými sem samfélagið eignar sér og fyllir af lífi,“ segja þær Sæunn og Arndís.


Gamla búð fær nýtt líf með nýju kaffihúsi og veitingastað. Hugmynd tveggja ungra kvenna er að verða að veruleika.

Bílakjarninn
Bílakjarninn