GTS aðstoðar lögreglu og slökkvilið við fólksflutninga
GTS hefur undirritað viljayfirlýsingu við Brunavarnir Suðurnesja og lögregluna á Suðurnesjum.
Viljayfirlýsingin snýr að því að GTS geti lagt til rútu og aðstoðað við flutning fólks þegar rýma þarf stærri byggingar vegna eldsvoða eða annarra neyðaraðstæðna. Rúturnar geta þá einnig nýst sem skjól fyrir fólk á meðan það bíður eftir frekari aðstoð.
Reglulega koma upp þær aðstæður þar sem þess gerist þörf að flytja þarf fólk í öruggt skjól. Síðast var það fyrir fáeinum misserum þegar eldur kom upp í fjölbýli í Keflavík og voru íbúar þá fluttir í skjól í húsnæði Rauða krossins á Suðurnesjum.
Erlingur Bjarnason, rekstrarstjóri GTS ehf. í Reykjanesbæ, sagði við undirritunina að fyrirtækið vilji leggja sitt af mörkum og vera til staðar fyrir samfélagið þegar á reynir. Þessi aðstoð verður samfélaginu að kostnaðarlausu.








