Uppbygging tjaldstæða í Reykjanesbæ: Útboð í Njarðvíkurskógum en íbúasamráð í Höfnum
Skipulagsráð Reykjanesbæjar fjallaði um tvö erindi varðandi tjaldstæði í sveitarfélaginu á síðasta fundi sínum. Niðurstöður ráðsins voru ólíkar eftir svæðum, en grænt ljós var gefið á áframhaldandi undirbúning í Njarðvíkurskógum á meðan áform í Höfnum kalla á nánara samráð.
Óskað var eftir heimild til að bjóða út uppbyggingu og rekstur á tjaldsvæði í Njarðvíkurskógum. Um er að ræða 1,8 hektara afþreyingar- og þjónustusvæði (reit AF4 í aðalskipulagi) sem staðsett er í næsta nágrenni við íþrótta- og útivistarsvæði bæjarins.
Skipulagsráð samþykkti erindið fyrir sitt leyti og veitti heimild til að hafist verði handa við að vinna tillögu að deiliskipulagi fyrir tjaldsvæðið.
Ráð tók einnig fyrir endurtekið erindi frá Sveini Enok Jóhannssyni, sem óskaði eftir afnotum af landi í eigu Reykjanesbæjar undir tjaldstæði fyrir ferðavagna í Höfnum.
Fyrirhuguð uppbygging á svæðinu krefst breytinga á aðalskipulagi Hafna. Skipulagsráð benti á að slík breyting þyrfti að vinnast í samráði við íbúa svæðisins og vísaði nánari úrvinnslu málsins til heildarendurskoðunar á aðalskipulagi sveitarfélagsins.







