Optical Studio - 5. sept
Optical Studio - 5. sept

Fréttir

Bráðabirgðahringtorg og undirgöng í undirbúningi á Njarðarbraut
Hilmar Bragi Bárðarson
Hilmar Bragi Bárðarson skrifar
laugardaginn 29. ágúst 2026 kl. 15:03

Bráðabirgðahringtorg og undirgöng í undirbúningi á Njarðarbraut

Talsverðar breytingar eru fram undan í umferðarmálum í Ásahverfi og meðfram Njarðarbraut. Nú þegar hefur gatnamótum Bergáss við Grænásbraut verið lokað að norðanverðu til að koma í veg fyrir mikinn gegnumakstur um íbúðagötu, en það var gert í kjölfar undirskriftalista frá íbúum.

Guðbergur Reynisson, formaður umhverfis- og framkvæmdaráðs, fór yfir stöðu umferðarmála á fundi bæjarstjórnar Reykjanesbæjar og sagði að lokun Bergáss væri einungis fyrsta skrefið í víðtækari úrbótum.

„Enn er mikilvægt að bæta aðgengi bæði akandi og gangandi vegfarenda inn og út úr hverfinu, enda hefur aukin umferð á Njarðarbraut skapað þar verulegar áskoranir,“ sagði Guðbergur.

Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26

Meðal þeirra framkvæmda sem nú eru í undirbúningi eða hönnun eru:

  • Bráðabirgðahringtorg á gatnamótum Bergáss og Njarðarbrautar.
  • Undirgöng undir Grænásbrekku fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur.
  • Nýir göngustígar frá Fitjum sem tengja Fitjabakka og Fitjabraut við göngustígakerfið.
  • Ofanbyggðarvegur: Áhersla er lögð á að flýta þeirri tengingu frá Vallarási að Grænásvegi sunnan Reykjanesbrautar til að létta enn frekar á íbúðagötum.

Guðný Birna Guðmundsdóttir, bæjarfulltrúi Samfylkingar, kallaði eftir skýrum svörum um tímalínu framkvæmda og benti á að tugir milljóna hefðu þegar verið samþykktir í fjárfestingaráætlun ársins fyrir hönnun og framkvæmdir við Njarðarbraut. Vilhjálmur Árnason bæjarstjóri sagði vinnuna í fullum gangi en benti á að sumar gatnaframkvæmdir fari ekki af stað fyrr en tilskilin gatnagerðargjöld hafa skilað sér í hús.

Bílakjarninn
Bílakjarninn