Optical Studio - 5. sept
Optical Studio - 5. sept

Fréttir

45% kosið í Reykjanesbæ og 52% í Suðurnesjabæ
Frá kjörstað í leikskólanum Grænuborg í Sandgerði í dag. VF/hilmarbragi
Laugardagur 29. ágúst 2026 kl. 18:03

45% kosið í Reykjanesbæ og 52% í Suðurnesjabæ

- 50% kosið í Vogum

Kjörsókn í þjóðaratkvæðagreiðslu í Reykjanesbæ var 45,18% kl. 18:00 í dag og 5.873 kosið. Umferð hefur verið nokkuð þétt á kjörstaðina í dag en þá voru einnig fjölmargir sem greiddu atkvæði utan kjörfundar. 

Í Suðurnesjabæ höfðu 1409 manns kosið núna kl. 18:00 sem gerir rétt tæplega 52% kjörsókn í sveitarfélaginu.

Optical Studio - 5. sept
Optical Studio - 5. sept

Í Sveitarfélaginu Vogum höfðu 50,5% kosið kl. 18:00 eða 613 manns. Inni í þeirri tölu eru ekki þau sem kusu utan kjörfundar.

Leiðrétt: Víkurfréttir fengu rangar tölur um kjörsókn kl. 18 sem nú hafa verið leiðréttar. Tölur sem bárust voru aðeins úr Sandgerði en ekki Garði. Fréttin hefur verið uppfærð.


Frá kjörstað í Reykjanesbæ í dag. VF/pket

Svona er kjörseðillinn þar sem valið stendur um já eða nei.

Bílakjarninn
Bílakjarninn