Meirihlutinn stefnir á sölu til leigjenda en ekki fjölgun íbúða
Lóðamál og framtíðarsýn í húsnæðismálum voru til umræðu á fundi bæjarráðs Reykjanesbæjar þann 20. ágúst þegar lögð voru fram svör meirihlutans við sjö spurninga fyrirspurn minnihluta Framsóknarflokks og Samfylkingar.
Í svörum meirihluta Sjálfstæðisflokks og Miðflokks kemur skýrt fram að ekki sé stefnt að því að fjölga félagslegum íbúðum í sveitarfélaginu. Þess í stað verði áhersla lögð á að stórauka almennt lóðaframboð, afnema innviðagjöld og auðvelda íbúum að eignast eigið húsnæði.
Stefna á að selja leigjendum félagslegar íbúðir
Eitt af meginmálum meirihlutans er að bjóða fólki í félagslegu húsnæði tækifæri til að kaupa íbúðir sínar. Í svari meirihlutans kemur fram að sú vinna sé að hefjast og verið sé að skoða útfærslur á því hvernig hægt sé að hjálpa fólki til eignamyndunar á skynsaman hátt. Meirihlutinn áréttar þó að ekki standi til að selja allar félagslegar íbúðir bæjarins og að skoðað verði hvernig komið verði í veg fyrir að framboð dragist saman umfram þörf.
Varðandi sérstakar úthlutunarlóðir fyrir óhagnaðardrifin leigufélög sagði meirihlutinn að engin ákvörðun hefði verið tekin um slíkt. Þá eru engin önnur slík félög með umsóknir um lóðir hjá bænum um þessar mundir samkvæmt upplýsingum frá skipulagsfulltrúa.
Samkomulag við Brynju leigufélag og uppbygging í Álfadal
Í svörum velferðarsviðs, sem lögð voru fram á fundinum, er reifuð staða viljayfirlýsingar Reykjanesbæjar og Brynju leigufélags frá árinu 2023 um uppbyggingu á íbúðum fyrir öryrkja. Markmið samkomulagsins er að bætast við 37 íbúðir á árunum 2022–2026 og að eignasafn Brynju nái 64 íbúðum.
Breytingar urðu á áformum um sjö íbúða raðhús fyrir sértæka búsetu sem til stóð að reisa á Ásbrú árið 2025. Hætt var við þau áform og var Brynju í staðinn úthlutað raðhúsalóð í Álfadal í Njarðvík. Til stendur að endurnýja viljayfirlýsinguna fyrir lok ágústmánaðar.
Staða biðlista í Reykjanesbæ
Gögn velferðarsviðs sýna að mikil þörf er á húsnæði í sveitarfélaginu:
- Eldri borgarar: Reykjanesbær á 64 íbúðir til félagslegrar úthlutunar fyrir eldri borgara, en 20 umsóknir eru á biðlista.
- Almennt félagslegt húsnæði: Bærinn ræður yfir 166 íbúðum fyrir aðra hópa en 110 umsóknir liggja fyrir.
- Búsetukjarnar fatlaðs fólks: Samtals eru 17 íbúðir í sértækum búsetukjörnum með sólarhringsþjónustu. 19 manns eru á biðlista í dag, en þarfagreining gerir ráð fyrir að 28 nýjar umsóknir berist á næstu árum.








