Fréttir

Nýtt vinnufyrirkomulag hjá Reykjaneshöfn fest í sessi
Fimmtudagur 27. ágúst 2026 kl. 09:55

Nýtt vinnufyrirkomulag hjá Reykjaneshöfn fest í sessi

Bætir vinnuaðstæður og þjónustu

Atvinnu- og hafnarráð Reykjanesbæjar hefur samþykkt að gera nýtt vinnufyrirkomulag hjá Reykjaneshöfn varanlegt, auk þess sem tímabundið starf var gert að fastráðningu.

Breytingarnar voru upphaflega samþykktar til reynslu í janúar á þessu ári vegna aukins álags sem hlýst af vaxandi hafnarstarfsemi. Eldra vinnufyrirkomulag mætti ekki lengur þörfum hafnarinnar og var ákveðið að fjölga almennum starfsmönnum úr þremur í fjóra með tímabundinni ráðningu.

Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26

Eftir nokkurra mánaða reynslutíma er það sammála mat starfsmanna og stjórnenda að nýja fyrirkomulagið hafi reynst vel og fært umtalsverðar kjarabætur í vinnuaðstæðum ásamt því að efla þjónustugetu hafnarinnar. Atvinnu- og hafnarráð var einhuga um að festa fyrirkomulagið í sessi til framtíðar og samþykkti að fastráða starfsmanninn sem réðst til hafnarinnar í febrúar síðastliðnum.

Bílakjarninn
Bílakjarninn