MSS námskeið haust 2026
MSS námskeið haust 2026

Fréttir

Marinó Stefánsson ráðinn sviðsstjóri umhverfis- og skipulagssviðs
Miðvikudagur 26. ágúst 2026 kl. 10:40

Marinó Stefánsson ráðinn sviðsstjóri umhverfis- og skipulagssviðs

Bæjarráð Sveitarfélagsins Voga samþykkti á fundi sínum 25. ágúst ráðningu Marinós Stefánssonar í starf sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs. Marinó mun hefja störf hjá sveitarfélaginu 1. október nk.

Marinó kemur til Sveitarfélagsins Voga með víðtæka reynslu af stjórnun, framkvæmdum og sveitarstjórnarmálum. Hann starfar nú sem svæðisstjóri Austurlands hjá Kubbi ehf. en starfaði áður sem verkefnastjóri hjá Framkvæmdasýslunni – Ríkiseignum. Á árunum 2014–2023 starfaði hann hjá Fjarðabyggð, þar af um árabil sem sviðsstjóri framkvæmdasviðs. 

Optical Studio - 5. sept
Optical Studio - 5. sept

Marinó er arkitekt með M.Sc.-gráðu í sjálfbærri borgarhönnun frá Háskólanum í Lundi, auk þess að vera byggingafræðingur og húsasmíðameistari. Hann sameinar því reynslu af stjórnun og opinberri stjórnsýslu við sterka þekkingu á framkvæmdum, skipulagi og uppbyggingu.

„Það eru einstaklega spennandi tímar framundan í Sveitarfélaginu Vogum. Sveitarfélagið er í örum vexti og framundan eru stór verkefni í uppbyggingu innviða, skipulagsmálum og þróun samfélagsins. Við viljum sækja fram af krafti og ég tel að reynsla Marinós, þekking og breiður bakgrunnur falli einstaklega vel að þeim verkefnum sem bíða okkar. Ég hlakka mikið til samstarfsins,“ segir Björg Ásta Þórðardóttir, bæjarstjóri Sveitarfélagsins Voga.

Með ráðningu Marinós bætist öflugur liðsmaður í hópinn á spennandi tímamótum hjá sveitarfélaginu. Sveitarfélagið Vogar býður hann hjartanlega velkominn til starfa og hlakkar til samstarfsins framundan, segir í tilkynningu.

Bílakjarninn
Bílakjarninn