Fréttir

Ný lífræn fráveituhreinsistöð í Höfnum
Aron Heiðar Steinsson, veitustjóri Reykjanesbæjar og Guðbergur Reynisson, bæjarfulltrúi við nýju hreinsunarstöðina.
Þriðjudagur 25. ágúst 2026 kl. 12:07

Ný lífræn fráveituhreinsistöð í Höfnum

Reykjanesbær hefur tekið í notkun nýja lífræna fráveituhreinsistöð í Höfnum. Með tilkomu stöðvarinnar er stigið stórt skref í fráveitumálum sveitarfélagsins, en stöðin þjónustar um 80% fráveitu í Höfnum.

Áður fór skólp frá svæðinu óhreinsað til sjávar en með nýju stöðinni fer það nú í gegnum lífrænt hreinsiferli áður en hreinsuðu frárennsli er veitt til sjávar. Hreinsistöðin hefur afkastagetu upp á um 22 m³ og er miðuð við um 100 persónueiningar (PE). Að lokinni hreinsun er vatnið um 98% hreint.

Stöðin byggir á WPL HiPAF-tækni þar sem hreinsunin fer fram í þremur meginþrepum. Fyrst eru föst efni og seyra skilin frá með botnfellingu. Því næst tekur við lífræn hreinsun þar sem örverur brjóta niður lífræn efni í skólpinu með aðstoð loftunar. Að lokum fer fram lokabotnfelling áður en hreinsað vatnið er leitt til sjávar.

Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26

Iðnver ehf. seldi Reykjanesbæ hreinsistöðina og búnað henni tengdan. Rekan ehf. var aðalverktaki við framkvæmdina og sá um uppsetningu og framkvæmdir á staðnum.

Meginhluti hreinsistöðvarinnar er neðanjarðar og því eru sjónræn áhrif hennar lítil. Hreinsieiningin sjálf er um níu metrar að lengd og tæpir þrír metrar á breidd, auk búnaðar fyrir loftun og stjórnun kerfisins.

Heildarkostnaður við verkefnið, að meðtöldum búnaði og framkvæmdum, var um 50 milljónir króna. Framkvæmdum er nú lokið og stöðin komin í fullan rekstur.

Verkefnið markar verulega breytingu frá fyrra fyrirkomulagi. Þar sem áður var engin hreinsun á frárennslinu fer það nú í gegnum lífræna hreinsun sem dregur verulega úr mengunarálagi áður en vatninu er veitt til sjávar. Með framkvæmdinni hefur því orðið mikil framför í fráveitumálum á svæðinu og um leið er verið að bæta umhverfisvernd og styrkja innviði sveitarfélagsins til framtíðar, segir í frétt frá Reykjanesbæ.

Bílakjarninn
Bílakjarninn