MSS námskeið haust 2026
MSS námskeið haust 2026

Fréttir

Með ferska sýn í Suðurnesjabæ
Hilmar Bragi Bárðarson
Hilmar Bragi Bárðarson skrifar
mánudaginn 24. ágúst 2026 kl. 10:10

Með ferska sýn í Suðurnesjabæ

Alexandra Jóhannesdóttir tekur við sem bæjarstjóri í Suðurnesjabæ

Alexandra Jóhannesdóttir, nýr bæjarstjóri og hafnarstjóri í Suðurnesjabæ. Hún sér óþrjótandi tækifæri á svæðinu en hún kemur til starfa eftir átta ára farsælan feril sem sveitarstjóri og hafnarstjóri á Skagaströnd. Hún mætir í nýtt samfélag af mikilli bjartsýni, reynslu og einbeittum vilja til að draga fram það besta í bæjarlífinu.

Óvænt innkoma í sveitarstjórnarmálin

Alexandra er í grunninn borgarbarn, alin upp í Grafarvogi. Hún lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík og meistaragráðu í lögfræði frá Háskóla Íslands. Eftir að hafa starfað sem lögfræðingur hjá Listahátíð í Reykjavík, Fiskistofu og í einkageiranum dró til tíðinda þegar staða sveitarstjóra á Skagaströnd var auglýst.

Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26

„Það var nokkuð óvænt. Því hafði verið gaukað að mér að sækja um en ég var í góðri vinnu og gerði ekkert í því í fyrstu. En þegar staðan var auglýst aftur hugsaði ég: „Þetta gæti verið gaman!“ Ég sótti um á síðustu stundu, fór í viðtal og fékk starfið. Það var engin stór pæling á bak við það að fara í pólitík eða sveitarstjórnarmál, þetta bara æxlaðist svona hálf óvart.“

Flutningarnir norður voru talsvert stökk fyrir Alexöndru sem viðurkennir með brosi á vör að hún hafi hvorki þekkt til á svæðinu né verið sérlega ratvís:

„Ég verð bara að segja þér alveg eins og er: Ég er svo agalega léleg í áttum og allir sem þekkja mig vita það. Ég þurfti að setja GPS-tækið í gang til að rata af því að ég vissi varla hvort ég var að fara vestur, norður eða austur! Ég hafði aldrei komið á Skagaströnd áður en ég mætti í viðtalið. En svo tók ég þessa ákvörðun nokkuð hratt, gerði nauðsynlegar ráðstafanir – og var svo bara flutt.“

Dýrmætur skóli: „Þú þarft að vera með breitt bak“

Upphaflega stóð til að prófa starfið í eitt ár en úr urðu átta viðburðarík ár á Skagaströnd. Alexandra segir reynsluna úr litlu samfélagi vera ómetanlega en jafnframt krefjandi.

„Þetta er ekki fyrir hvern sem er. Það getur verið erfitt að vera einn á nýjum stað í svona stöðu þar sem stór hluti bæjarbúa vinnur með þér og nándin er mikil. Þú þarft að vera með svolítið breitt bak. En samfélagið tók dásamlega á móti mér, mér leið alltaf eins og ég ætti heima þar og ég eignaðist vinafólk til lífstíðar.“

Á Skagaströnd sinnti Alexandra margvíslegum hlutverkum. Hún var bæði sveitar- og hafnarstjóri auk þess að gegna ýmsum trúnaðarstörfum á landsvísu, m.a. sem varaformaður Hafnasambands Íslands og Samgönguráðs og formaður Almannavarnarnefndar Austur-Húnavatnssýslu.

„Á Skagaströnd var stjórnsýslan á skrifstofunni í rauninni bara ég, bókari og fjármálastjóri. Þannig að sveitarstjóri þar þarf að vera „hands-on“ í öllum verkefnum. Hvort sem það var að vera með bráðabirgðalöggildingu á hafnarvog, vera yfir öllum verklegum framkvæmdum eða standa bakvakt í barnavernd, þetta var allur skalinn. Hér í Suðurnesjabæ er ég hins vegar með öflugan sérfræðihóp og fleiri hendur til að vinna verkin, sem er frábær stuðningur og gefur tækifæri til að vinna að góðum og uppbyggilegum hlutum fyrir samfélagið.“

Sótti bara um í Suðurnesjabæ

Þegar breytingar urðu í sveitarstjórn á Skagaströnd ákvað Alexandra að tími væri kominn til að færa sig nær fjölskyldunni og foreldrum sínum í Reykjavík. Suðurnesjabær var eina sveitarfélagið sem hún sótti um hjá.

„Þegar þú ferð í svona starf þarftu að ganga með samfélagið í hjartanu. Verkefnin verða að vera spennandi og krefjandi og þú þarft að sjá að þú getir gert gagn. Ég mátaði mig inn í Suðurnesjabæ og mér leist mjög vel á. Ég kem á sama núllpunkti hingað og ég gerði fyrir norðan, þekki engan og kem alveg hlutlaus inn.“

Alexandra sér stór tækifæri í að koma ný inn í samfélag þar sem umræða hefur verið hávær um sameiningarferlið síðan 2018 sem og einstök deilumál sem leiða þarf í jörð:

„Ég kem hingað án sögu og án tengsla, bara með kaldan haus: „Hvert er verkefnið og hvernig leysum við það?“ Í grunninn vilja langflestir byggja upp og sækja fram og mjög mörg deilumál snúast einfaldlega um það að taka ákvörðun, annaðhvort að hefjast handa eða taka mál af borðinu. Við þurfum bara að anda okkur í gegnum verkefnin og einbeita okkur að öllu því jákvæða sem er að gerast hér í sveitarfélaginu.“

Býr í „Risaeðluhúsinu“ og fylgist með út um gluggann

Móttökurnar á bæjarskrifstofunni og í samfélaginu hafa verið hlýjar og Alexandra og ungur sonur hennar hafa komið sér vel fyrir í Garðinum.

„Við búum í „risaeðluhúsinu“ eins og sonur minn kallar það, frábæru grænu húsi í Teiga- og Klappahverfinu sem byggt er af heimamönnum hjá Braga Guðmundssyni. Okkur líður dásamlega vel. Sonur minn er byrjaður á leikskólanum Gefnarborg og ég get meira að segja fylgst aðeins með honum út um skrifstofugluggann hjá mér, sem eru forréttindi.“

Fyrstu dagarnir í vinnu hjá nýjum bæjarstjóra buðu upp á talsverða eldskírn í tengslum við skipulagningu á sólmyrkvanum mikla þar sem starfsfólk sveitarfélagsins þurfti að bregðast við af festu.

„Dagarnir voru langir en starfsfólkið stóð sig ótrúlega vel án nokkurrar forskriftar. Þetta sýndi mér strax hvað hér er öflugur og samheldinn starfsmannahópur. Ég stóð fyrir utan heimili mitt þegar myrkvinn sjálfur skall á. Það var magnað og næstum dálítið óhuggulegt að hlusta á fuglana, mávarnir trylltust alveg.“

Björt framtíð og sóknarhugur

Þegar horft er til framtíðar segir Alexandra tækifærin í Suðurnesjabæ vera óþrjótandi og svæðið afskaplega vel sett landfræðilega.

„Við erum nálægt öllum helstu flutningsleiðum, með einn öflugasta og mikilvægasta vinnustað landsins á flugvallarsvæðinu, rótgróin sjávarútvegsfyrirtæki eins og Nesfisk og Samherja, frábæra höfn sem við getum nýtt enn betur, og tækifæri til uppbyggingar á grænum iðnaði á Bergvíkursvæðinu og víðar. Við þurfum að skapa hagstæð skilyrði fyrir atvinnulífið og koma í veg fyrir sóun í kerfinu. Gervigreindin er komin til sögunnar og með henni eru að opnast tækifæri til að nútímavæða opinbera þjónustu. Það er tækifæri sem við verðum að grípa til að tryggja skilvirkni í kerfinu og einfalda íbúum lífið.“

Ég er afskaplega bjartsýn og tilbúin í samstarf við bæjarbúa og kjörna fulltrúa um að gera gott samfélag enn betra. Verðmætasköpun er grundvöllur hagvaxtar og við þurfum bæði að hlúa að því sem fyrir er og skapa aðlaðandi forsendur fyrir ný sóknarfæri. Núna er rétti tíminn til að vera upplitsdjörf, jákvæð og sækja fram.“

Bílakjarninn
Bílakjarninn