Kadeco í meiriháttar tiltekt á Tæknivöllum – frestur til loka september
Kadeco á Ásbrú hyggst fara í mikið átak í tiltekt á Tæknivöllum í haust. Að sögn Samúels Torfa Péturssonar, þróunarstjóra Kadeco mun tiltektin ná til opins landsvæðis sem er utan skráðra lóða og þar sem ekki er til staðar þinglýstur leigusamningur.
„Allt efni, búnaður, tæki og úrgangur sem geymdur er án skriflegs leyfis frá Kadeco verður fjarlægður í haust. Aðilar sem hafa verið að geyma efni án leyfis hafa fengið frest út septembermánuð til að fjarlægja það sem þeim tilheyrir. Að þeim fresti loknum mun Kadeco, í samstarfi við hreinsunaraðila, fjarlægja allt það efni og úrgang sem eftir situr og farga því með tilhlýðilegum hætti,“ segir Samúel en sérstakt ferli verður í gangi vegna númerslausra bílflaka. Þeim verður komið fyrir á sérstöku söfnunarsvæði þar sem eigendur geta vitjað þeirra. Verði þeirra ekki vitjað verður þeim komið í formlegt afskráningarferli og endanlega förgun hjá viðurkenndri móttökustöð í samstarfi við viðeigandi yfirvöld.
Slá tóninn fyrir framtíðarþróun svæðisins
Þessi tiltekt tengist áformum Kadeco og Reykjanesbæjar um framtíðarþróun Tæknivalla sem fyrirmyndar athafnasvæðis. Svæðið er vel staðsett nærri Keflavíkurflugvelli og í einungis um 20 mínútna akstursfjarlægð frá höfuðborgarsvæðinu.
Nýverið var samþykkt nýtt deiliskipulag fyrir svæðið og auglýst til sölu lóðarréttindi á alls 19 lóðum af fjölbreyttri stærð og lögun. Á næsta ári verður hafist handa við endurnýjun fráveitu og fleiri lóðir gerðar byggingarhæfar.
„Með þessari tiltekt vilja Kadeco slá tóninn fyrir framtíðina. Félagið vill gjarnan vinna þetta átak með þeim góðu aðilum sem eru með starfsemi sína á Tæknivöllum í dag og hvetja alla til að hafa snyrtilegt í kringum sig,“ segir Samúel.







