Heitar umræður um launahækkanir kjörinna fulltrúa í bæjarráði Reykjanesbæjar
Heitar umræður urðu um launakjör kjörinna fulltrúa á fundi bæjarráðs Reykjanesbæjar þann 20. ágúst. Svör meirihlutans við fyrirspurnum minnihlutans um hækkun á launum kjörinna fulltrúa og afléttingu svokallaðrar „launafrystingar“ vöktu sterk viðbrögð, en minnihlutinn sakar meirihlutann um verulegar eigin launahækkanir í ósamræmi við boðað aðhald.
Tekist á um reglur og „heiðursmannasamkomulag“
Í svari sínu hafnaði meirihluti Sjálfstæðisflokks og Miðflokks því að sérstök pólitísk ákvörðun hafi verið tekin um að hækka laun kjörinna fulltrúa. Launakjör fylgi samþykktum sveitarfélagsins sem tengi þau við þingfararkaup og stjórnsýslan hafi einfaldlega framkvæmt gildandi reglur. Ef víkja ætti frá þeim hefði þurft sérstaka ákvörðun þar að lútandi. Meirihlutinn benti jafnframt á að gert væri ráð fyrir 4% launahækkun í fjárhagsáætlun ársins 2026 og að ónýttar fjárheimildir bæjarstjórnar og ráða (rúmar 86,4 milljónir króna) rúmi áætlaðan heildarlaunakostnað nefnda og bæjarstjórnar upp á 80,2 milljónir.
Fulltrúar Framsóknar og Samfylkingar, Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir og Guðný Birna Guðmundsdóttir, mótmæltu þessari atburðarás í bókun. Þær vísuðu til þess að á síðasta kjörtímabili hefði verið gert heiðursmannasamkomulag í bæjarráði um að frysta laun kjörinna fulltrúa og taka ekki við árlegum hækkunum þingfararkaups til að sýna hófsemi. Sú ákvörðun hefði staðið óröskuð án þess að þurfa nýja samþykkt árlega.
Minnihlutinn gagnrýnir 15 milljóna króna aukakostnað
Minnihlutinn benti á að þrátt fyrir að fjögur ráð hafi verið lögð niður í hagræðingarskyni bjóði nýr meirihluti upp á hækkun á launum kjörinna fulltrúa um tæpar 15 milljónir króna. Föst laun og nefndarlaun hækki um 21%, en mestu hækkanirnar séu hjá formanni bæjarráðs. Föst mánaðarlaun og fundargreiðslur formannsins hækki um 65%, eða um 460 þúsund krónur á mánuði (rúmar 5,5 milljónir á ári), auk þess sem starfið hafi í fyrsta sinn verið gert að fullu starfi.
Að mati minnihlutans er 10 milljóna króna hagræðing meirihlutans með fækkun nefnda orðin að 5 milljóna króna halla vegna þessara launahækkana. Minnihlutinn ítrekaði að ábyrg fjármálastjórn fæli í sér að sýna hófsemi og að eigin kjör eigi alltaf að mæta afgangi.
Svör meirihlutans
Meirihluti bæjarráðs svaraði gagnrýninni stuttlega í bókun sinni og sagði að betur hefði farið á því að minnihlutinn hefði haft sambærilegar áhyggjur af launakostnaði kjörinna fulltrúa og umsvifum nefndarlauna á síðasta kjörtímabili. Þá hefði verið rétt af hálfu fyrri bæjarstjórnar að ganga frá nauðsynlegum breytingum á reglunum hafi ætlunin verið að frystingin ætti að gilda til framtíðar.








