Góð keiluveiði hjá línuskipunum
Hækkað fiskverð breytir „skraptúrum“ í glæsilegan afla
Línuskip Vísis, Páll Jónsson GK og Sighvatur GK, leggja mikla áherslu á keiluveiði um þessar mundir, samkvæmt frétt á heimasíðu Síldarvinnslunnar hf. Páll Jónsson landaði 116 tonnum af keilu og löngu í Grindavík á mánudag og Sighvatur landar 60 tonnum af keilu í dag.
Jónas Ingi Sigurðsson, skipstjóri á Páli Jónssyni, var afar ánægður með túrinn en aflinn fékkst í fimm og hálfri lögn syðst í Grindavíkurdýpinu. Meðalvigt keilunnar var yfir þremur kílóum og löngunnar á milli fjögur og fimm kíló. Jónas nefndi í samtali við heimasíðuna að svona veiði hafi gjarnan verið kölluð „skraptúrar“ en með hækkandi fiskverði sé spurning hvort rétt sé að nota það heiti lengur.
Prófað víða um miðin
Óli Björn Björgvinsson, skipstjóri á Sighvati, sagði að fimm lagnir hefðu verið teknar allvíða: á Eyrinni, Heimsmeistarahrygg, Pínulitla banka og sunnan við Melsekk. Veiðin hafi gengið hægar að þessu sinni en í síðasta túr, en almennt hafi keiluveiði gengið vel að undanförnu.
Reiknað er með að línuskipin haldi áfram áherslu á keilu- og lönguveiðar út ágústmánuð.








