Sævar Gylfason tryggði Reyni stig á heimavelli
Reynir og KH skildu jöfn, 2–2, á Bronsvellinum í Sandgerði í 18. umferð 3. deildar karla í kvöld.
Leikurinn fór af stað af krafti en Jordan Smylie kom heimamönnum í Reyni yfir strax á 4. mínútu. Gestirnir í KH svöruðu hins vegar af hörku. Tristan Snær Daníelsson jafnaði metin á 18. mínútu og á 28. mínútu kom Haukur Ásberg Hilmarsson KH yfir, 1–2.
Í aðdraganda seinna marks KH varð harkalegt samstuð milli markvarðar Reynis, Sindra Snæs Reynissonar, og sóknarmanns gestanna. Sindri Snær gat ekki haldið leik áfram í kjölfarið og þurfti Reynir að gera markvarðarskiptingu á 31. mínútu þegar Guðjón Snorri Herbertsson kom inn á í hans stað.
Heimamenn gefast sjaldan upp á sínum heimavelli og á 65. mínútu var það Sævar Gylfason sem tryggði Reyni eitt stig með því að jafna leikinn í 2–2. Þar við sat og skiptu liðin því með sér stigunum í spennandi leik.
Reynir er eftir leik kvöldsins áfram í 2. sæti deildarinnar, mótherjar þeirra í kvöld í því þriðja en Víðir er á toppnum.








