MSS námskeið haust 2026
MSS námskeið haust 2026

Fréttir

Áhöfn Virgin Voyages og Blái herinn hreinsuðu 340 kíló úr Þórkötlustaðafjöru
Þriðjudagur 18. ágúst 2026 kl. 09:58

Áhöfn Virgin Voyages og Blái herinn hreinsuðu 340 kíló úr Þórkötlustaðafjöru

Áhöfn skemmtiferðaskipafélagsins Virgin Voyages tók höndum saman við Bláa herinn annað árið í röð og stóð fyrir umfangsmikilli fjöruhreinsun í Grindavík. Að þessu sinni varð Þórkötlustaðafjaran fyrir valinu og söfnuðust 340 kíló af rusli í aðgerðinni.

Björn Skúlason, eiginmaður Höllu Tómasdóttur forseta Íslands, var heiðursgestur við hreinsunina. Hann bauð hópinn velkominn í sitt gamla sveitarfélag og fór fyrir hreinsunarliðinu ásamt Jónasi Karli Þórhallssyni.

Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26
30 manns í „Impact Squad“

Verkefnið er hluti af samfélagsverkefni áhafna Virgin Voyages, sem kallast Impact Squad. Hugmyndin að baki því er að áhafnarmeðlimir skemmtiferðaskipanna geti valið að taka þátt í uppbyggilegum samfélagsverkefnum í þeim löndum sem siglt er til. Á Íslandi hefur val áhafnarinnar orðið að styðja við strandhreinsiverkefni Bláa hersins.

Alls tóku 30 manns þátt í hreinsuninni að þessu sinni, en í fyrra tóku um 50 manns þátt þegar Hraunsvíkurfjaran var hreinsuð og söfnuðust þá 1.060 kíló af úrgangi.

Eigandi Virgin Voyages er Sir Richard Branson en góð vinátta er á milli hans og forsetahjónanna. Tómas J. Knútsson hjá Bláa hernum segir samstarfið vera mikla hvatningu fyrir öll sem að því koma og að forsetahjónin hafi verið einstaklega ánægð með hvernig til tókst.

Aflagað sjávarfang og endurunnir sokkar

Að hreinsun lokinni var öllum þátttakendum boðið til veitinga á Papas Restaurant í Grindavík. Blái herinn færði forsetahjónunum einnig harðfisk frá Stafnesi að gjöf, auk þess sem Björn Skúlason fékk sérstaka sokka sem framleiddir eru úr endurunnum veiðarfærum. Veiðarfærin eru meðal annars hreinsuð úr íslenskum fjörum af Bláa hernum í samstarfi við Hampiðjuna og Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS).

Bílakjarninn
Bílakjarninn