MSS námskeið haust 2026
MSS námskeið haust 2026

Fréttir

Merkir menn á ferð í Sandgerði
Merkir menn að störfum við Suðurgötu í Sandgerði í morgiun. VF/hilmarbragi
Mánudagur 17. ágúst 2026 kl. 10:20

Merkir menn á ferð í Sandgerði

Nú er verið að merkja síðustu húsin í Sandgerði í átaki sem félagsskapurinn Merkir menn hóf fyrir nokkrum árum. Verkefnið hófst í Garði með því að merkja hús sem eru byggð fyrir árið 1960. Húsin eru merkt nafni hússins og hverjir fyrstu ábúendur voru.

Þegar lokið var við að merkja húsin í Garði var farið yfir í Sandgerði og haldið áfram með verkefnið þar. Í báðum byggðakjörnum Suðurnesjabæjar hefur verið reynt að fá sem upprunalegasta mynd af viðkomandi húsi. Það hefur reyndar ekki alltaf tekist.

Skiltin eru upplýsandi og mikilvæg fyrir söguna þar sem í eina tíð höfðu öll hús sitt nafn en í dag tilheyra húsin bara götum og götunúmeri.
Myndin var tekin í morgun þegar Baldurshagi var merktur. Baldurshaga þekkja flestir í dag sem Suðurgötu 1 í Sandgerði.

Nánar í Víkurfréttum í vikunni.

Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn
Bílakjarninn