MSS námskeið haust 2026
MSS námskeið haust 2026

Fréttir

Glæsileg snekkja vekur athygli við Keflavík
SNekkjan V6 liggur nú við ankeri skammt undn landi við Keflavík. VF/hilmarbragi
Fimmtudagur 13. ágúst 2026 kl. 10:02

Glæsileg snekkja vekur athygli við Keflavík

Lúxussnekkjan V6, sem siglir undir fána Cayman-eyja, liggur nú við ankeri utan við Keflavík. Um er að ræða sérbyggða könnunarsnekkju (explorer yacht) sem er hönnuð til að þola erfiðar aðstæður á úthöfunum.

Skipið, sem er tæplega 48,5 metra langt og 10 metra breitt, vekur jafnan mikla athygli hvar sem það kemur. Ólíkt hefðbundnum skemmtibátum sem halda sig í hlýrri sjó við Miðjarðarhaf eða Karíbahaf, er V6 sérstaklega útbúin til langferða um kaldari svæði og harðbýlli hafsvæði eins og Norður-Atlantshafið.

Þyrlupallur og mikil drægni

Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26

V6 var smíðuð í Nýja-Sjálandi árið 2007 (stundum þekkt undir fyrri nöfnunum Tyr og T6). Á dekki skipsins er meðal annars stór þyrlupallur, sem gerir gestum kleift að ferðast á milli skips og lands eða skoða til dæmis náttúru úr lofti. Skipið tekur um 10 gesti í lúxusklefum og um borð er stór áhöfn.
Það er ekki á hverjum degi sem glæsiskip af þessari stærðargráðu sjást hér.

Þetta er í annað sinn á fáeinum dögum sem skipið hefur viðkomu hér en ætla má að hluti heimsóknarinnar hafi verið til að upplifa almyrkvann í gær.

Hljómahöll
Hljómahöll