Áfram Ísland
Áfram Ísland

Fréttir

Um 30 þúsund tré og plöntur gróðursett í Reykjanesbæ í sumar
Gróðursett á svæði við Sólbrekkuskóg í sumar. VF/hilmarbragi
Fimmtudagur 13. ágúst 2026 kl. 10:22

Um 30 þúsund tré og plöntur gróðursett í Reykjanesbæ í sumar

Umfangsmikil gróðursetning hefur farið fram í Reykjanesbæ í sumar, en alls voru um 30 þúsund tré og plöntur gróðursett á svæðinu. Verkefnið er liður í því að gera nærumhverfi íbúa grænna, efla útivistarsvæði og skapa fjölbreyttara bæjarlandslag til komandi ára.

Smáskógar í Innri-Njarðvík í brennidepli

Sérstök áhersla var lögð á Innri-Njarðvík í sumar í samræmi við óskir íbúa og var auknu fjármagni varið til verkefnisins Smáskógar. Í aðdraganda þess voru opin útivistarsvæði — þar sem ekki er gert ráð fyrir uppbyggingu — skilgreind og kortlögð. Markmiðið er að koma þar upp minni trjálundum sem prýða nærumhverfið.

Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26

Bæjarstarfsmenn gróðursettu um 10 þúsund bakkaplöntur á 11 mismunandi stöðum í Innri-Njarðvík í vor. Mest var gróðursett af furu, en einnig fóru greni- og asparplöntur í jörðu.

Gróðursett var á eftirtöldum stöðum:

  • Engjadal, Trönudal og Einidal

  • Við Stapaskóla og Akurskóla

  • Við Tjarnarbraut og Tjarnabakka

  • Við Háseylu, Geirdal og Dalsbraut

20 þúsund plöntur á skógræktarsvæðum bæjarins

Samhliða verkefninu í Innri-Njarðvík var unnið að víðtækari gróðursetningu á almennum skógræktarsvæðum Reykjanesbæjar, þar sem um 20 þúsund plöntur bættust við í sumar.

Samanlagt nema gróðursetningar sumarsins því um 30 þúsund plöntum. Trén sem gróðursett voru í ár munu vaxa og dafna með bæjarfélaginu og búa til enn betri umgjörð fyrir útivist og samveru íbúa á komandi árum.

Hljómahöll
Hljómahöll