MSS námskeið haust 2026
MSS námskeið haust 2026

Fréttir

Leikskólastarf hafið að nýju í Grindavík
Úr leikskólastarfinu. Mynd af vef Grindavíkurbæjar.
Fimmtudagur 13. ágúst 2026 kl. 09:29

Leikskólastarf hafið að nýju í Grindavík

Leikskólastarf er hafið að nýju í Grindavík í fyrsta sinn frá því bærinn var rýmdur í nóvember 2023. Starfsemin fer fram í leikskólanum Laut, sem er hluti af samreknum leik- og grunnskóla Grindavíkur.

Tíu börn hófu aðlögun í þessari viku en alls eru 13 börn skráð í leikskólann eins og staðan er í dag. Mikil vinna hefur verið lögð í undirbúning og skipulag starfsins með það að markmiði að skapa öruggt, þægilegt og hvetjandi umhverfi fyrir börnin, segir á vef bæjarins.

Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26
Fyrirsjáanleiki og sveigjanlegt dagsskipulag

Dagsskipulag hefur verið unnið með áherslu á fyrirsjáanleika og gott flæði. Jafnframt hafa helstu verkferlar, listar og merkingar verið yfirfarin og uppfærð, ásamt því sem lögð er áhersla á skýra verkaskiptingu og gott upplýsingaflæði á milli starfsfólks.

Skipulagið verður sveigjanlegt og tekur mið af þörfum barnahópsins hverju sinni. Í starfinu verður gefinn góður tími fyrir leik og samskipti auk sköpunar, hreyfingar og útiveru. Markmiðið er að bjóða upp á fjölbreytt, markvisst og vel skipulagt starf og skapa þannig góðan grunn að ánægjulegu og farsælu leikskólaári.

Samstarf við foreldra og öryggismál

Í síðustu viku var haldinn kynningarfundur með foreldrum þar sem farið var yfir skipulag og áherslur skólastarfsins í vetur.

Öryggismál eru í hávegum höfð og hefur sérstök rýmingaráætlun verið unnin fyrir leikskólann í samstarfi við sveitarfélagið og viðbragðsaðila. Sú áætlun verður kynnt sérstaklega fyrir foreldrum barna á næstunni.

Hljómahöll
Hljómahöll