Mánudagur 29. júní 2026 kl. 18:28

Níræður Hilmar Sölva í sviflínu yfir Hveragerði: „Þetta var geðveikt“

Það er misjafnt hvað fólk tekur upp á þegar aldurinn færist yfir, en Hilmar Rafn Sölvason ákvað að fagna væntanlegu níræðisafmæli sínu með því að þjóta á sviflínu yfir Hveragerði. Blaðamaður hitti þennan spræka heiðursmann þar sem hann var nýlentur, fullur orku en hefði þó alveg viljað fá að fara aðeins hraðar.

Það er líf og fjör í Hveragerði þennan daginn. Stór hluti fjölskyldu Hilmars Rafns Sölvasonar er mættur til að hvetja kappann, en tilefnið er óvenjuleg afmælisgjöf sem hann fékk frá Hafsteini frænda sínum. Hilmar verður nítíu ára á annan í jólum, og sex mánuðum fyrir stóra daginn var skellt í sviflínuflug í svokallaðri „Súperman-stellingu“.

Við tókum Hilmar tali að afloknu sviflínufluginu. Þegar Hilmar var lentur má heyra hann segja í myndskeiðinu sem fylgir: „Þetta var geðveikt“