Reykjanesbær Myrkvastund
Reykjanesbær Myrkvastund

Fréttir

RÚV horfir til himins á Garðskaga
Þriðjudagur 11. ágúst 2026 kl. 16:41

RÚV horfir til himins á Garðskaga

RÚV er með talsverðan búnað á Garðskaga vegna almyrkva á sólu á morgun, miðvikudaginn 12. ágúst. Þar hefur verið komið fyrir útsendingarbíl sem er tengdur fjórum myndavélum.

Meðal annars hefur verið sett upp myndavél með öflugri linsu sem horfir til himins af Hólmsteini GK, sem er safngripur á Garðskaga. Í dag var búnaðurinn prófaður og sólin römmuð inn.

Áfram Ísland
Áfram Ísland

Veðurhorfur eru ekki góðar fyrir skyggni til sólmyrkvaáhorfs, en ef sólin lætur sjá sig á myrkvastundinni þá varir myrkvinn hvað lengst á Garðskaga.

Ef alskýjað verður þegar almyrkvinn á sér stað mun bresta á með svarta myrkri í tæpar tvær mínútur hér suður með sjó.

RÚV verður með sjónvarpsútsendingu á morgun um sólmyrkvann.

Útsendingin hefst klukkan 13 og stendur fram að fréttum klukkan 19. Hún heldur síðan áfram eftir fréttir til klukkan 20.

RÚV verður með beina útsendingu víðs vegar um landið vestanvert, á Bolafjalli við Bolungarvík, Látrabjargi, Suðurnesjum, í Selárdal og Hellissandi og á höfuðborgarsvæðinu.

Hljómahöll
Hljómahöll