Föstudagur 26. júní 2026 kl. 08:20

Sumarmagasín Víkurfrétta: Úra- og skartgripaverslunin Líndal opnar

Nýr kafli er hafinn í verslunarsögu Keflavíkur en úra- og skartgripaverslunin Líndal hefur opnað dyr sínar að Hafnargötu 49. Verslunin er arftaki hinnar rótgrónu verslunar Georgs V. Hannah, sem rekin var í heil 59 ár. Nýr eigandi er Helgi Líndal, nýútskrifaður gullsmiður, sem tók við keflinu af Eggerti Hannah gullsmið.

Helgi hóf námssamning hjá Eggerti árið 2022 og lauk námi frá Tækniskólanum í fyrra. Þegar Eggert ákvað að láta staðar numið bauðst Helga að kaupa reksturinn. „Ég sá bara ekki annað í stöðunni en að segja já,“ segir Helgi í samtali í Sumarmagasíni Víkurfrétta. Hann viðurkennir að það sé áskorun að taka við svona rótgróinni verslun en spennan sé ríkjandi.

Fyrsti opnunardagurinn fór fram úr björtustu væntingum og mikið var um manninn. Helgi bendir á að grundvöllurinn fyrir sérverslun sem þessari sé sterkur á Suðurnesjum. „Þetta er eina úraverslunin á svæðinu og það vantar alltaf eitthvert úr eða batterí. Svo finnst mér áhuginn á skartgripum líka fara vaxandi.“

Úrvalið á Hafnargötunni er fjölbreytt. Þar má finna klassísk gæðaúr á borð við Tissot, Raymond Weil og Orient, sem og gömlu góðu Casio-úrin. Þá býður Helgi upp á mikið úrval af gull- og silfurvöru á breiðu verðbili, auk Leatherman-fjölnotatóla með áletrun, sem hann kallar „vasahnífa á sterum“.

Helgi mun sjálfur standa vaktina en nýtur dyggrar aðstoðar móður sinnar og kærustu. Móðir hans er enginn nýliði á Hafnargötunni en hún rak SI-verslunina þar til margra ára. Fram undan er svo uppbygging á eigin hönnun því Helgi stefnir á að smíða sinn eigin skartgripalager jafnt og þétt.