Víðtækur viðbúnaður og einstefnur vegna almyrkvans
Viðbragðsaðilar á Suðurnesjum búa sig nú undir mikinn fjölda gesta miðvikudaginn 12. ágúst þegar almyrkvi á sólu verður sýnilegur af svæðinu. Aðgerðastjórn verður virkjuð í Reykjanesbæ, þrjár vettvangsstjórnir starfræktar og gripið til umfangsmikilla breytinga á umferðarskipulagi.
Aukinn viðbúnaður verður hjá Lögreglunni á Suðurnesjum, björgunarsveitum Slysavarnafélagsins Landsbjargar, Brunavörnum Suðurnesja, Slökkviliði Grindavíkur og Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Í fréttatilkynningu frá lögreglustjóra kemur fram að aðgerðastjórn verði virkjuð í Reykjanesbæ ásamt þremur vettvangsstjórnum á svæðinu „til að tryggja skilvirka samhæfingu viðbragðsaðila og viðbrögð við mögulegum atvikum.“
Hvetja fólk til að fylgjast með í þéttbýli
Sérstaklega er þeim tilmælum beint til íbúa á svæðinu að þeir þurfi ekki að ferðast um langan veg til að upplifa sjónarspilið.
„Íbúar á Suðurnesjum eru minntir á að almyrkvinn sést vel frá heimilum í þéttbýli á svæðinu. Ekki er því nauðsynlegt að leggja í langferð til að njóta þessa einstaka sjónarspils,“ segir í tilkynningunni. Sveitarfélögin hafa komið upp sérstökum safnstöðum og er fólk hvatt til að ganga eða hjóla þangað til að draga úr umferðarálagi.
Strangt bann við að leggja á vegöxlum
Búast má við miklum töfum og þungri umferð um allt svæðið. Lögreglan bendir á að þeir sem ætla að ferðast þurfi að leggja snemma af stað og vera viðbúnir því að dvelja lengur á áfangastað en áætlað var. Fólk er hvatt til að hafa nægan mat, drykk og nauðsynleg lyf meðferðis í bílnum.
Einnig er ákveðnum skilaboðum beint til ökumanna varðandi leggingu ökutækja: „Óheimilt er að leggja ökutækjum á vegum eða vegöxlum. Ökutæki sem lagt er þannig að það hindri umferð eða skapi hættu verður fjarlægt á kostnað eiganda.“
Einstefnur og lokanir á vegum
Vegna hins mikla umferðarálags verður komið á sérstöku skipulagi á tilteknum köflum:
- Garðskagavegur/Stafnesvegur (45): Einstefna verður frá Nesvegi/Hafnarvegi til norðurs í átt að Sandgerði.
- Vatnsleysustrandarvegur (420): Einstefna verður frá Vogum til austurs í átt að Kúagerði.
- Skagabraut að Garðskagavita: Einstefna verður að Garðskaga og keyrt til baka um Útgarðsveg að golfskálanum í Sandgerði.
- Lokanir: Alveg verður lokað fyrir umferð um Bláalónsveg og Höskuldarvallarveg.
Flugfarþegar og GSM-net
Farþegar sem eiga bókað flug frá Keflavíkurflugvelli eru sérstaklega hvattir til að mæta tímanlega til að missa ekki af sínu flugi vegna tafa á Reykjanesbraut. Þá eru þeir sem koma til landsins beðnir um að sýna þolinmæði.
Þá varar lögreglan við því að farsímakerfið geti orðið fyrir miklu álagi: „Viðbúið er að mikið álag verði á GSM-farsímakerfið, sérstaklega á stöðum utan þéttbýlis þar sem mikill fjöldi fólks kann að safnast saman. Mikilvægt er að hafa í huga að mögulegt er að erfitt geti reynst að ná sambandi vegna álags á kerfinu.“
Ef neyðarástand skapast skal hringja í 112, en ef hefðbundna númerið næst ekki er bent á varanúmer Neyðarlínunnar: 599 0112.
Venjuleg sólgleraugu duga ekki
Lögreglan minnir á að fólk verður að nota viðurkennd sólmyrkvagleraugu þegar horft er beint til sólar fyrir og eftir að almyrkvinn skellur á. „Fylgið ávallt leiðbeiningum um rétta notkun gleraugnanna og notið ekki venjuleg sólgleraugu í þeirra stað,“ segir í tilkynningunni.
Nánari upplýsingar um safnstaði, dagskrá og bílastæði má finna á heimasíðum sveitarfélaganna, ásamt vefjunum visitreykjanes.is og solmyrkvi2026.is.
Lögreglan endar skilaboðin með þessum orðum: „Með sameiginlegri ábyrgð, tillitssemi og góðum undirbúningi getum við öll notið almyrkvans á öruggan hátt og komið heil heim.“







