Áfram Ísland
Áfram Ísland

Fréttir

Töluverður eldur í bíl í Sandgerði
Myndirnar eru frá vettvangi í morgun. VF/hilmarbragi
Mánudagur 10. ágúst 2026 kl. 11:34

Töluverður eldur í bíl í Sandgerði

Slökkvilið Brunavarna Suðurnesja réð niðurlögum elds í Kia fólksbifreið á Sandgerðisvegi í morgun. Fjölmennt lið viðbragðsaðila frá lögreglu og slökkviliði var sent á vettvang.

Tilkynnt var um eldinn á ellefta tímanum í morgun en ökumaður, sem var á leið út úr Sandgerði, hafði fundið lykt eins og af brennandi rafmagnsvírum augnabliki áður en vélarrými bílsins, sem gengur fyrir jarðefnaeldsneyti, varð alelda.

Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26

Reykur frá brennandi bílnum sást alla leið til Reykjanesbæjar en slökkviliðsmenn voru fljótir að slökkva eldinn þegar komið var á vettvang.

Lögregla lokaði vettvangi og beindi umferð á hjáleið meðan unnið var að slökkvistarfi.

Hljómahöll
Hljómahöll