Fimmtudagur 25. júní 2026 kl. 13:58

Tókst loksins að fella bygginguna - sjáið myndskeiðið

Verktökum sem vinna að niðurrifi kísilversins í Helguvík tókst loksins að fella byggingu sem unnið hefur verið að niðurrifi á síðustu vikur.

Byggingin hefur staðið skökk nær allan júnímánuð en eftir hádegið í dag var búið að tengja dráttartaugar í þrjár öflugar vinnuvélar og þá náðist loksins að fella bygginguna.

Nú verður farið í að klippa niður stálið og koma því til förgunar. Framundan er svo að fella aðra og enn stærri byggingu ásamt miklu röravirki.

Myndskeið af því þegar byggingin fellur er í myndskeiði með fréttinni.