Reykjanes Optikk Ljósanótt 2026
Reykjanes Optikk Ljósanótt 2026

Fréttir

Lengstur sólmyrkvi í Garði og Sandgerði
Laugardagur 8. ágúst 2026 kl. 08:20

Lengstur sólmyrkvi í Garði og Sandgerði

Von er á þúsundum gesta til Suðurnesja í tilefni af almyrkva á sólu þann 12. ágúst næstkomandi. Sveitarfélög á svæðinu hafa ráðist í viðamikinn undirbúning og skipulagt fjölbreytta viðburði til að tryggja að gestir og íbúar geti notið sjónarspilsins á öruggan og skemmtilegan hátt.

Allt gistirými og tjaldstæði á Suðurnesjum eru þegar fullbókuð. Sveitarfélögin hvetja fólk til að koma saman og upplifa viðburðinn í hópi, en Krummi Laxdal Viktorsson, verkefnastjóri í Reykjanesbæ, nefnir að upplifunin verði margfalt sterkari þegar fólk kemur saman.

Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26
Stærðargleraugu og hversdagskrá í Reykjanesbæ

Dagskrá verður í Reykjanesbæ á milli klukkan 17:00 og 18:30. Komið hefur verið fyrir fjórum risastórum sólmyrkvagleraugum með sérstakri almyrkvafilmu þar sem fólki er boðið að safnast saman:

  • Innri-Njarðvík: Við Kamb

  • Ytri-Njarðvík: Í Skrúðgarðinum

  • Keflavík: Í Holtunum ofan við Holtaskóla

  • Ásbrú: Við Ráðhúsið

Gestir eru hvattir til að ganga eða hjóla á dagskrársvæðin, taka með sér útilegustóla og teppi, ásamt því að muna eftir viðurkenndum sólmyrkvagleraugum.

Lengstur almyrkvi á Garðskaga og í Sandgerði

Í Suðurnesjabæ stendur almyrkvinn lengst á suðvesturhorninu, eða í tæpar tvær mínútur (um 1 mínútu og 45 sekúndur). Helstu áhorfsstaðirnir verða á Garðskaga og í Sandgerði þar sem ljósmengun er í lágmarki. Unnið hefur verið að því að bæta við bílastæðum og salernisaðstöðu á svæðinu.

Umferðarstýring og skipulag

Talsverðar breytingar verða á umferð til að tryggja öryggi og greiða fyrir umferð:

  • Götulokanir og einstefnur: Sjávarbraut í Sandgerði verður lokuð fyrir bílaumferð svo gangandi vegfarendur geti notið myrkvans á öruggan hátt. Einstefna verður á Skagabraut út að Garðskaga og umferð til baka beint um Útgarðsveg inn á Garðskagaveg.

  • Víðtækari umferðarstýring: Umferðarstýring verður á Garðskagavegi (frá Nesvegi að Sandgerði) og á Vatnsleysustrandarvegi (frá Vogum að Kúagerði).

  • Bílastæði: Gjaldskyld bílastæði verða í boði á tveimur túnum á Garðskaga og sérstakt rútuplan verður á Víðisplaninu.

Gæta þarf þess að leggja aðeins í merkt stæði til að halda neyðarleiðum opnum. Þá eru gestir minntir á að forðast notkun dróna yfir mannfjölda.

Eignasalan
Eignasalan