Reykjanesbær Myrkvastund
Reykjanesbær Myrkvastund

Fréttir

Fyrirkomulag gistisafnota í Grindavík óbreytt til 31. október
Frá Grindavík. Mynd af vef bæjarfélagsins.
Föstudagur 7. ágúst 2026 kl. 15:23

Fyrirkomulag gistisafnota í Grindavík óbreytt til 31. október

Unnið er að nýju lifandi áhættumati og kynningu á endurkaupaáætlun Fasteignafélagsins Þórkötlu án sérstakra takmarkana.

Fasteignafélagið Þórkatla hefur tilkynnt að fyrirkomulag gistiviðauka við hollvinasamninga í Grindavík muni haldast óbreytt næstu tvo mánuði, eða til 31. október næstkomandi.

Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26

Grindavíkurbær fagnar þessari ákvörðun og telur hana vera markvisst skref fram á við. Bæjaryfirvöld túlka ákvörðunina á þann veg að allar áætlanir um að takmarka gistiheimildir við 12 nætur á mánuði í húsum félagsins hafi verið lagðar til hliðar.

Mikil þörf á að halda ljósunum kveiktum

Í tilkynningu Þórkötlu kemur fram að gistiheimildin verði án sérstakra takmarkana á þessu tímabili. Sú staðreynd að tæplega 300 Grindvíkingar eru í dag með virka hollvinasamninga og um 170 með virka gistiheimild sýnir hve rík löngun og þörf er í samfélaginu til að halda ljósunum kveiktum og gæta heimila sinna.

Bæjaryfirvöld hafa fulla trú á því að sú vinna sem nú stendur yfir við gerð nýs, lifandi áhættumats muni leiða til þess að engin þörf verði á takmörkunum í framtíðinni. Markmið Grindavíkurbæjar er skýrt:

  • Að tryggja íbúum fullt valfrelsi til heimkomu á öruggum grunni án óþarfa hindrana.
  • Að endurkaupaáætlun Þórkötlu verði kynnt samfélaginu sem allra fyrst.
Samstarf og gagnadrifnar ákvarðanir

Pétur G. Markan, bæjarstjóri Grindavíkur, leggur ríka áherslu á að samstaða og vinnslan á nýju áhættumati sé lykillinn að því að eyða óvissu:

„Ákvörðun Þórkötlu um að halda samningum óbreyttum og án takmarkana til 31. október er eitt öruggt og markvisst skref fram á við. Við erum að vinna gríðarlega flotta og þétta vinnu með yfirvöldum og Þórkötlu við gerð nýs áhættumats. Þetta verður lifandi og gagnadrifið stjórntæki sem gerir okkur kleift að taka upplýstar og öruggar ákvarðanir um framtíðina. Á sama tíma vinnum við að því að fá endurkaupaáætlun Þórkötlu kynnta og lagða fram fyrir Grindvíkinga sem allra fyrst, svo fólk geti farið að skipuleggja heimkomu sína af alvöru.“

Bæjarstjórn Grindavíkur mun fylgjast grannt með næstu skrefum og halda íbúum upplýstum eftir því sem vinnunni miðar áfram á næstu vikum, segir á vef bæjarins.

Eignasalan
Eignasalan