Áhættumat fyrir þéttbýlið í Grindavík endurskoðað
Undanfarna mánuði hafa stjórnvöld unnið að endurskoðun á fyrirkomulagi við gerð áhættumats fyrir þéttbýlið í Grindavík. Markmiðið vinnunnar er að styðja við endurreisn Grindavíkur með öryggi íbúa að leiðarljósi. Forsætisráðherra kynnti endurskoðun áhættumats fyrir ríkisstjórn í síðasta mánuði. Frá þessu er greint á vef Stjórnarráðsins í dag.
Unnið hefur verið að endurskoðun áhættumats í nánu samráði við Grindvíkinga, almannavarnadeild ríkislögreglustjóra, lögreglustjórann á Suðurnesjum, Veðurstofuna og fleiri aðila. Að endurskoðuninni koma jafnframt verkfræðistofan Verkís og Alþjóðabankinn. Fyrr í sumar voru haldnar vinnustofur þar sem ofangreindir aðilar tóku þátt og nú eru að störfum hópar sem hafa hafið innleiðingu.
Í Grindavík ríkir viðvarandi óvissuástand. Landris er hægt en stöðugt og að mati Veðurstofunnar er líklegast að því ljúki með kvikuhlaupi eða eldgosi. Á sama tíma eru framkvæmdir á vegum ríkisins og Grindavíkurbæjar við að loka jarðsprungum langt komnar og það sama má segja um niðurrif húsa sem skemmdust í fyrri atburðum. Öryggi innan bæjarmarkanna hefur því aukist til muna þrátt fyrir áframhaldandi óvissu.
Nýja nálgunin felur í sér að áhættumatið byggist ekki eingöngu á vísindalegu mati á hættu heldur taki einnig mið af reynslu og gildismati þeirra sem búa og starfa við langvarandi óvissu. Með þátttöku Grindvíkinga, sérfræðinga og fræðimanna eru skilgreindir mælikvarðar á áhættu og skýr þolmörk fyrir ýmsa þætti, t.d. búsetu, tímabundna viðveru, þjónustu sveitarfélagsins og starfsemi fyrirtækja og innviða. Með nýrri nálgun verður áhættumatið gagnsærra og hagnýtara, unnt verður að uppfæra það eftir því sem aðstæður breytast og nýta það með markvissari hætti við ákvarðanir um endurreisn Grindavíkur.
Skýrsla Verkís um endurskoðun áhættumats fyrir þéttbýli í Grindavík, ásamt skýrslu Alþjóðabankans, er leiðarvísir fyrir áframhaldandi vinnu og lýsir uppbyggingu aðferðafræði áhættumatsins og ákvarðanatökunnar.
Skýrsla Verkís: Áhætturmat fyrir þéttbýli í Grindavík – Endurskoðun
Skýrsla Alþjóðabankans: Exploring Risk Tolerance Under Uncertanty – Grindavík






