Sandgerðingurinn Björgvin þróar Jarðvakt
– Nýr gagnvirkur mælaborðsvefur um jarðhræringar á Íslandi
Björgvin Guðjónsson, Sandgerðingur sem búsettur er í Danmörku, hefur nýverið hleypt af stokkunum nýjum gagnvirkum vef sem ber heitið Jarðvakt (https://jardvakt.snilld.dk). Vefurinn samþættir og birtir opinber gögn um jarðskjálfta- og eldvirkni á Íslandi á einum stað á mjög aðgengilegan og sjónrænan hátt.
Björgvin, sem áður hefur komið fram í Víkurfréttum vegna gervigreindarverkefna sinna hjá fyrirtækinu Snilld í Danmörku, segir hugmyndina hafa kviknað vegna þess hve opinber upplýsingaöflun getur verið sundurleit.
„Ég er Íslendingur en bý í Danmörku á meðan fjölskyldan mín býr á Íslandi. Ég hef fylgst með jarðskjálftum, óróa, landbreytingum og eldvirkni í mörg ár, að hluta til af áhuga og að hluta til vegna þess að þessir atburðir geta haft áhrif á fólkið sem stendur mér næst,“ segir Björgvin.
Hann bendir á að réttu upplýsingarnar séu vissulega aðgengilegar, en þær séu oft dreifðar yfir mismunandi kort, skjálftalista, óróalínurit og landbreytingamælingar. Markmiðið með Jarðvakt er að safna þessum opinberu gögnum saman á einum tvítyngdum vef (á íslensku og ensku), ásamt fræðandi útskýringum sem hjálpa almenningi að skilja gögnin betur.
Á vefnum er meðal annars hægt að stúdera:
-
Staðsetningu, dýpi og stærð jarðskjálfta.
-
Skjálftahrynur og þyrpingar.
-
Línurit yfir óróa og virkni.
-
Landbreytingamælingar (GPS/InSAR).
-
Takmarkanir þess hvað einstök mælitæki og merki geta sagt okkur.
Björgvin tekur skýrt fram að Jarðvakt sé ekki ætlað að spá fyrir um gos, gefa út hættumat eða koma í stað Veðurstofu Íslands, Almannavarna eða annarra opinberra vísindastofnana. Tilgangurinn sé frekar að auðvelda forvitnu fólki að lesa úr gögnunum og skilja samhengið betur.
Þá óskar Björgvin eftir endurgjöf frá sérfræðingum og öðrum áhugamönnum um útskýringar, hugtakagrunn og framsetningu á vefnum til að hægt sé að gera hann enn betri.
Slóðin á vefina er: jardvakt.snilld.dk






