Fréttir

Tíðar komur skemmtiferðaskipa á næstu vikum
MV Discoverer lagðist að bryggju í Reykjaneshöfn í morgun. VF/hilmarbragi
Fimmtudagur 6. ágúst 2026 kl. 09:46

Tíðar komur skemmtiferðaskipa á næstu vikum

Fyrsta skemmtiferðaskip ágústmánaðar, MV Discoverer, lagðist að bryggju í Reykjaneshöfn í morgun og markar það upphaf þéttrar dagskrár skemmtiferðaskipa á svæðinu næstu vikurnar. Áætlað er að sex skipakomur verði í höfninni í ágúst og september, en viðbúið er að dagskráin geti breyst eða skip bæst við með stuttum fyrirvara.

Reykjaneshöfn hvetur local fyrirtæki og þjónustuaðila til að kynna sér áætlunina vel og nýta upplýsingarnar við skipulagningu á mönnun, opnunartímum og þjónustu þá daga sem skipin eru í höfn.

Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26

Áætlaðar skipakomur í Reykjaneshöfn:

  • 6. ágúst: MV Discoverer (Kl. 09:00 – 17:30)

  • 9. ágúst: Azamara Journey (kl. 08:00 – 18:00)

  • 15. ágúst: Ocean Victory (kl. 06:00 – 18:00)

  • 16.–17. ágúst: Expedition (Kemur 16. ágúst kl. 18:00 – Fer 17. ágúst kl. 18:00)

  • 13.–14. september: Expedition (Kemur 13. sept. kl. 18:00 – Fer 14. sept. kl. 18:00)

  • 16. september: MV Discoverer (kl. 07:30 – 12:30)

Vakin er athygli á því að breytingar geta orðið á áætluninni.

Eignasalan
Eignasalan