Litrík skrúðganga í Reykjanesbæ fagnar náttúru, þjóðsögum og almyrkva á sólu
Þriðjudaginn 11. ágúst 2026, daginn fyrir væntanlegan almyrkva á sólu, verður efnt til litríkrar skrúðgöngu goðsagna og landslags (Landscape Myth Parade) í Reykjanesbæ. Viðburðurinn stendur frá kl. 18:00 til 19:00 og er íbúum sem og gestum boðið að taka þátt í hátíðarhöldunum, þar sem saman koma myndlist, þjóðsögur, náttúra og skapandi samfélagsþátttaka.
Skrúðgangan er lokaviðburður samfélagslistaverkefnisins Landscape Myth, sem rekið hefur verið á vegum Samfélags fyrir öll (Community for All). Undanfarnar vikur hafa þátttakendur á öllum aldri og af ólíkum uppruna kynnt sér íslenskar þjóðsögur, líffræðilega fjölbreytni Suðurnesja og sagnir tengdar sólmyrkvum. Samhliða því hafa þau hannað og skapað búninga, grímur og táknræn listaverk úr náttúrulegum og endurunnum efniviði.
Í skrúðgöngunni munu þátttakendur sýna afrakstur vinnunnar, en búningarnir sækja innblástur í eldfjallalandslag Íslands, plöntur, fuglalíf, lífríki hafsins og þjóðsagnaverur. Lifandi tónlist, gjörningar og gagnvirkar uppákomur munu umbreyta götum bæjarins í lifandi hátíð sem fagnar náttúru- og menningararfi svæðisins.
„Landscape Myth er tækifæri fyrir fólk á öllum aldri til að skapa saman, deila sögum og upplifa hvernig list getur tengt fólk við náttúruna, menninguna og hvert annað. Það er sérstaklega ánægjulegt að geta fagnað þessum einstaka stjarnfræðilega viðburði með samfélaginu á skapandi og aðgengilegan hátt,“ segir fulltrúi verkefnisins hjá Samfélagi fyrir alla.
Geta nælt sér í frí gleraugu fyrir sólmyrkvann
Öllum er frjálst að taka þátt, hvort heldur sem er í sjálfri göngunni eða sem áhorfendur meðfram gönguleiðinni. Í tengslum við viðburðinn verður boðið upp á frí sólmyrkvagleraugu svo gestir geti fylgst með almyrkvanum á öruggan hátt daginn eftir. Að sólmyrkvanum loknum verður gleraugunum safnað saman og þau send áfram til samfélags þar sem næsti almyrkvi mun eiga sér stað.
Gangan hefst við 88 Húsið/Fjörheima og lýkur við Skessuhelli, þar sem gestum verður boðið upp á heitt súkkulaði og notalega samveru.
Hagnýtar upplýsingar um viðburðinn:
-
Dagsetning: Þriðjudagur 11. ágúst 2026
-
Tími: Kl. 18:00–19:00
-
Gangleið: Frá 88 Húsinu/Fjörheimum að Skessuhelli
-
Aðgangur: Ókeypis og opinn öllum
Verkefnið er skipulagt af Samfélagi fyrir alla, með stuðningi Rauða krossins á Íslandi, Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum og Reykjanesbæjar. Sérstakar þakkir fá Rannveig Lilja Garðarsdóttir (Nanný) og Sævar Helgi Bragason fyrir þeirra framlag.






