Mannlíf

„Við mamma lágum inni í tjaldi og hlógum að pabba greyinu“
Þriðjudagur 4. ágúst 2026 kl. 09:39

„Við mamma lágum inni í tjaldi og hlógum að pabba greyinu“

Bylgja Sverrisdóttir fagnar sumrinu með gönguferðum og er nýbyrjuð í golfinu, en hún lætur rigninguna ekkert stoppa sig. Heima á palli finnst henni best að vera þegar sólin skín, en þegar hún rifjar upp útilegur úr æsku stendur upp úr bráðfyndin minning um eltingarleik föður hennar við krulluhund fjölskyldunnar á Úlfljótsvatni.

Húsafellshópurinn, pallurinn og mariðnað súpukjöt

Þegar Bylgja er spurð út í uppáhalds sumarminninguna þarf hún ekki að hugsa sig lengi um. Hún tengist skemmtilegri hefð sem hefur verið órjúfanlegur hluti af sumrinu í mörg ár.

Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26

„Það eru ferðirnar í Húsafell með saumaklúbbnum ‚Nálinni‘, mökum og börnum. Við förum alltaf þriðju helgina í júlí á hverju einasta ári og við höfum einhvern veginn alltaf verið svo heppin að fá gott veður,“ segir Bylgja glöð.

Ef hún á hins vegar dásamlegan frídag í vændum þarf hún ekki að fara langt: „Ég myndi fara beint á pallinn minn, því þar er einfaldlega allt til alls.“

Á grillinu hjá Bylgju er nauta- og lambakjöt í aðalhlutverki en hún lumar líka á skemmtilegu grilltrikki. „Stundum tek ég súpukjöt, marinera það og set svo upp á grillteina ásamt grænmeti. Með þessu finnst mér best að hafa grillað grænmeti, eða baka það í ofni, og svo klikkar aspasinn auðvitað aldrei.“

Fyndnasta ferðasagan: Hundaeltingarleikur á Úlfljótsvatni

Bylgja á margar góðar minningar úr ferðalögum en ein saga úr æskuútilegu með foreldrunum fylgir henni enn.

„Þetta var þegar ég fór með mömmu og pabba í útilegu á Úlfljótsvatni þegar ég var barn. Við áttum krulluhund sem pabba var nú ekkert alltof vel við, og hundurinn slapp tvisvar sinnum út um miðja nótt,“ segir Bylgja og glottir.

„Á meðan pabbi, greyið, var úti á bömmer að reyna að elta hundinn, sem lét ekki ná sér, lágum við mamma inni í hlýju tjaldi og réðum okkur ekki fyrir kæti af hlátri yfir uppákomunni.“

SUMARRÁÐ

Bíltúralagið í ár: „Sumarið er tíminn“ með Bubba Morthens.

Fyrsta verk í 20 stiga hita: „Brosa hringinn og fara rakleitt út í góða veðrið.“

Ómissandi sumarhefð: „Auk Húsafellsferðarinnar er það algjör skylda að ná að minnsta kosti einni helgarferð með fjölskyldunni í Grímsnesið.“

Faldi gimsteinninn: „Það er svo margt í boði en mér finnst vera dregnir upp margir ótrúlega fallegir staðir á Reykjanesskaganum.“

Í sólbaðinu/útilegunni: „Ég ætla að kynna mér bókina Umrót, sem frænka mín, Árelía Eydís Guðmundsdóttir, var að gefa út.“

Besta ráðið fyrir rigningardaga: „Mér finnst sumarið dásamlegur tími. Ég fer mikið í gönguferðir og er nýbyrjuð í golfi, þannig að ég læt smá rigningu ekkert stoppa mig. Það er bara að klæða sig í regnfötin — við höfum jú enga stjórn á þessu blessaða veðri, svo það er best að njóta dagsins bara í botn!“



Eignasalan
Eignasalan