Tengja.is
Tengja.is

Fréttir

Pólitískur viðsnúningur og viðurkenndu mistök
Mánudagur 3. ágúst 2026 kl. 04:26

Pólitískur viðsnúningur og viðurkenndu mistök

Það stefndi í harðar deilur og ásakanir um valdníðslu á bæjarstjórnarfundi Suðurnesjabæjar nýverið, en þeim lyktaði með fágætum viðsnúningi þegar meirihlutinn viðurkenndi mistök og samþykkti að hleypa tveimur stórum baráttumálum minnihlutans aftur í umræðu.

Málið varðar tvær tillögur Framsóknarflokksins (B-lista) um bráðnauðsynlega uppbyggingu á knattspyrnuaðstöðu í sveitarfélaginu og eflingu á streymi frá bæjarstjórnarfundum. Bæjarstjórn hafði áður vísað málunum til nánari vinnslu í bæjarráði, en þegar fundargerð ráðsins var lögð fram kom í ljós að meirihluti D- og S-lista hafði einfaldlega fellt þau og afgreitt út af borðinu.

Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26

Fulltrúar B-listans, þeir Magnús Sigfús Magnússon og Anton Kristinn Guðmundsson, gagnrýndu vinnubrögðin harðlega og sögðu meirihlutann hafa hunsað ákvörðun bæjarstjórnar og gert helming bæjarfulltrúa atkvæðalausan. Anton benti sérstaklega á að vegna aðstöðuleysis þyrftu ungmenni sveitarfélagsins að sækja æfingar í önnur sveitarfélög með tilheyrandi raski og kostnaði fyrir fjölskyldur.

Umræðurnar tóku hins vegar óvænta stefnu þegar Svavar Grétarsson, formaður bæjarráðs og fulltrúi S-lista, steig upp og viðurkenndi mistök:

„Ég ætla smá að fá að spila hérna reynsluleysisspilið... Klárlega átti þetta að vera til umræðu, ekki til afgreiðslu.“

Aðrir bæjarfulltrúar meirihlutans tóku undir að um lærdómsferli væri að ræða og rétt væri að bíða komu nýs bæjarstjóra áður en stórar ákvarðanir yrðu teknar.

Eftir stutt fundarhlé náðist víðtæk sátt. Samþykkt var samhljóða að vísa málunum tveimur aftur til bæjarráðs til efnislegrar umræðu, við mikinn fögnuð viðstaddra, og var málinu fagnað sem farsælli og lýðræðislegri lausn. Bæjarráð hefur núna vísað streymismálum til umræðu um gerð fjárhagsáætlunar. Uppbygging knattspyrnuaðstöðu var lögð fram á síðasta fundi bæjarráðs.

Eignasalan
Eignasalan