Vargur herjar á kríuvarp á Ströndinni
Láta til skarar skríða gegn meindýrum og ránfuglum á Vatnsleysuströnd
Umhverfis- og skipulagsnefnd Sveitarfélagsins Voga vill láta til skarar skríða gegn meindýrum og ránfuglum sem herja af auknum þunga á kríuvarpið á Vatnsleysuströnd. Nefndin leggur til við bæjarstjórn að kallaðir verði til minkaveiðimenn og refaskyttur til að stöðva þessa þróun, ásamt því að eyrnamerkja til þess sérstakt fjármagn í fjárhagsáætlun.
Aðgerðirnar eru viðbragð við ábendingu um að kríuvarpi við ströndina fari óðfluga hnignandi og að fuglinn verpi nú á umtalsvert færri stöðum en áður. Ástæðan er talin vera vaxandi fjöldi vargs á svæðinu, en meindýrin virðast hafa haft greitt aðgengi að æti á ákveðnum stöðum meðfram ströndinni.
Tekið er skýrt fram í afgreiðslu nefndarinnar að úrbóta sé þörf án tafar til að vernda varpsvæðin. Ásamt því að efla veiðar hefur umhverfis- og skipulagssviði verið falið að taka fast á ætisframboðinu og eiga samtal við íbúa og rekstraraðila á svæðinu svo að meindýrin finni ekki lengur lífsviðurværi við ströndina.






