Hugmyndirnar um KEF Center ríma vel við framtíðarsýn hafnarinnar
Sjávarútvegur í Reykjanesbæ hefur látið undan síga á síðustu áratugum og ferðaþjónustan tekið sífellt stærra hlutverk. Hjónin Steinþór Jónsson og Hildur Sigurðardóttir hjá Hótel Keflavík hafa kynnt metnaðarfulla framtíðarsýn undir heitinu KEF Center, þar sem gert er ráð fyrir nýjum bæjarkjarna á Vatnsnesi með allt að 1.100 nýjum íbúðum, stækkaðri heilsulindarþjónustu, KEF Lagoon og öflugu atvinnu- og menningarlífi.
Mótun svæðisins hefur vakið mikla athygli og dregið fram viðbrögð frá lykilaðilum í bæjarfélaginu.
Senda skemmtiferðaskip í hjarta bæjarins
Hugmyndir um metnaðarfulla uppbyggingu á Vatnsnesi falla eins og flís við rass við framtíðaráform Reykjaneshafnar. Þetta segir Halldór K. Hermannsson hafnarstjóri, en stefnt er að því að breyta Keflavíkurhöfn í þjónustuhöfn fyrir smærri skemmtiferðaskip.
Að sögn Halldórs hefur það verið leiðarstef í framtíðarsýn Reykjaneshafnar allt frá árinu 2017 að markaðssetja Keflavíkurhöfn fyrir smærri skemmtiferðaskip, með viðleguaðstöðu í hjarta bæjarins. Þegar hugmyndirnar um Vatnsnesið voru kynntar fyrir stjórn hafnarinnar á vormánuðum kom á óvart hversu mikil samlegðaráhrif væru á milli verkefnanna.
„Ég kynnti þessar hugmyndir um uppbyggingu hafnarinnar og Vatnsnessins fyrir fulltrúum frá nokkrum skemmtiferðaskipaútgerðum nú í maí og vöktu þær mikla lukku,“ segir Halldór. Hann vonast til þess að þessi framtíðarsýn raungerist sem mest, enda yrði hún samfélaginu til góðs.
Starfsemin færist yfir í Njarðvík
Þessum áformum fylgja jafnframt breytingar á núverandi starfsemi hafnarinnar. Til stendur að færa löndunaraðstöðu, hafnarvog og skrifstofu yfir á hafnarsvæðið við Njarðvíkurhöfn.
Um kostnaðarsama flutninga er að ræða og hefur verið horft til þess að höfnin selji landaðstöðu sína við Víkurbraut til að fjármagna breytingarnar. Að sögn Halldórs á eftir að koma í ljós hvort sú aðstaða verður seld áður en þróun svæðisins hefst eða síðar í ferlinu.








