Þriðjudagur 7. júlí 2026 kl. 16:19

Sumarmagasín: Át 18 pylsur á sex tímum til að sleppa við sólarhringsrefsingu

Ísak Þór Ragnarsson, starfsmaður flugvallarþjónustu Isavia, þurfti að taka út heldur óvenjulega refsingu í dag eftir að hafa hafnað í neðsta sæti í Fantasy-deild vinnustaðarins. Refsingin hljóðaði upp á 24 klukkustunda viðveru á Bæjarins beztu á Fitjum í Njarðvík, en Ísak fann fljótt smávegis glufu í kerfinu.

Fyrir hverja pylsu sem hann borðaði styttist refsingin um eina klukkustund. Ísak mætti á svæðið klukkan átta í morgun, beint eftir næturvakt, og hófst handa við að vinna sig inn í frelsið.

„Mér finnst pylsur fínar en ástæðan fyrir þessu er að ég tapaði í Fantasy. Við erum í deild í vinnunni og refsingin var sú að ég þarf að vera hérna í 24 tíma. En hver pylsa tekur klukkutíma af,“ sagði Ísak í samtali á meðan hann maulaði á fimmtándu pylsunni.

Eingöngu tómatsósu og sinnep

Til að auðvelda átið fékk hann sér eingöngu tómatsósu og sinnep á pylsurnar „til þess að hafa smá blautt í þessu.“ Starfsfólk Bæjarins beztu sýndi verkefninu mikinn skilning og styrkti átakið, en Ísak áætlaði að hann væri að innbyrða á bilinu 6.500 til 7.000 hitaeiningar auk gríðarlegs magns af salti.

Þrátt fyrir að átið hafi þyngst til muna þegar leið á daginn hélt Ísak ótrauður áfram, studdur af vinnufélögum sem kíktu við til að hlæja og hvetja hann áfram. Svo fór að hann náði markmiði sínu; hann innbyrti 18 pylsur á sex klukkustundum og gat því yfirgefið staðinn saddur og sæll klukkan tvö og því náð að leggja sig áður en haldið væri á næturvakt.

Ætlar ekki að tapa aftur

Ísak játar að það verði langt þangað til hann fái sér pylsu á ný og stefnir ótrauður á að tapa ekki aftur á næsta tímabili, enda stutt í stóra daginn: „Ég er að fara að gifta mig í ágúst þannig að þetta er pínu skellur fyrir það líka. Ég vona bara að ég verði ekki geðveikt útsprengdur af bjúg þegar ég fer í fötin!“

Sumarmagasín Víkurfrétta fylgdist með Ísaki torga síðustu pylsunum og ræddu við hann um verkefnið, sem var langt frá því að vera auðvelt, eins og sést vel í myndskeiðinu sem fylgir fréttinni.