Búa sig undir sólmyrkvann á Garðskaga
Fræðslusýning í samstarfi við Stjörnu-Sævar
Það styttist óðum í hinn einstaka almyrkva á sólu sem verður þann 12. ágúst næstkomandi. Af því tilefni hefur Byggðasafnið á Garðskaga sett upp sérstaka fræðslusýningu í samstarfi við Sævar Helga Bragason, betur þekktan sem Stjörnu-Sævar.
Sýningin samanstendur af tíu vönduðum fræðslu- og sýningarspjöldum sem Stjörnu-Sævar tók saman til að fræða bæði íbúa og gesti um þetta fágæta náttúrufyrirbæri sem senn skellur á. Til að mæta erlendum gestum er allt efni sýningarinnar bæði á íslensku og ensku.
Verkefnið var styrkt af Menningarsjóði Suðurnesjabæjar og Uppbyggingarsjóði Suðurnesja.
Sólmyrkvagleraugu og bækur í boði
Gestir Byggðasafnsins geta ekki bara fræðst heldur líka tryggt sér nauðsynlegan búnað fyrir stóra daginn. Á safninu eru sérstök sólmyrkvagleraugu til sölu sem merkt eru Suðurnesjabæ, en ágóði af sölu þeirra hjá Sævari rennur beint í áframhaldandi gerð fræðsluefnis og vísindastarf. Þá er bókin Sólmyrkvar – vísindalæsi eftir Sævar einnig til sölu á staðnum.
Ókeypis aðgangur alla daga
Sýningin er frábær áfangastaður fyrir fjölskyldur og áhugafólk um stjörnufræði sem vilja undirbúa sig fyrir viðburðinn.
Byggðasafnið á Garðskaga er opið alla daga frá kl. 10:00 til 17:00 og er ókeypis aðgangur á safnið og sýninguna.







