Tengja.is
Tengja.is

Fréttir

Vogar búa sig undir almyrkvann
Laugardagur 1. ágúst 2026 kl. 06:15

Vogar búa sig undir almyrkvann

Sveitarfélagið Vogar hefur hafist handa við undirbúning fyrir miðvikudaginn 12. ágúst 2026, þegar almyrkvun á sólu verður sýnileg yfir Reykjanesskaganum. Um er að ræða einstakan náttúruatburð.

Næsti almyrkvi á eftir þessum mun ekki verða sýnilegur hér á landi fyrr en árið 2245.

Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26

Gert er ráð fyrir miklum fjölda gesta á Reykjanesið til að fylgjast með atburðinum og starfa Vogar náið með viðbragðsaðilum á svæðinu við skipulagningu.

Nákvæmar tímasetningar í Vogum:
  • 16:47:17 – Deildarmyrkvi hefst
  • 17:48:11 – Almyrkvi hefst
  • 17:48:57 – Almyrkvi í hámarki
  • 17:49:43 – Almyrka lýkur (almyrkvinn stendur í 1 mínútu og 32 sekúndur)
  • 18:47:54 – Deildarmyrkva lýkur
Brýna mikilvægi augnverndar

Lögð er rík áhersla á að fólk noti öryggisvottuð sólmyrkvagleraugu til að koma í veg fyrir varanlegan augnskaða.

Sveitarfélagið hefur þegar gefið öllum nemendum Stóru-Vogaskóla slík gleraugu, en auk þess selur Ungmennafélagið Þróttur gleraugu á 500 krónur í Íþróttamiðstöðinni í Vogum.

Íbúum og gestum er bent á að fylgjast með frekari upplýsingum og uppfærslum á vef sveitarfélagsins, vogar.is.

Eignasalan
Eignasalan