Nýtt „trend“ á Garðskaga? Brjóstahaldarar birtast á girðingunni
Bogi Jónsson, veitingamaður í Kaffi Skúrnum á Garðskaga, hefur veitt því eftirtekt að nýtt og óvenjulegt trend virðist vera að taka sig upp á svæðinu. Einhverjir gestir hafa tekið upp á því að hengja brjóstahöld á girðinguna hjá honum.
Bogi deildi myndum og pælingum um málið á Garðmenn og Garðurinn í gær þar sem hann leitaði ráða:
„Jæja, ég sé að það virðist vera ný „trend/tískubylgja“ í uppsiglingu hér á girðingunni. Það er búið að hengja upp þessi brjóstahöld á girðinguna. Á ég að leyfa þessu að vera eða taka niður? Ef ég læt þetta vera er viðbúið að það muni bætast í safnið eins og gerðist fyrir austan, ef ég fer rétt með.“
Vísar Bogi þar væntanlega til hinnar þekktu „brjóstahaldaragirðingar“ undir Eyjafjöllum sem hefur vakið mikla athygli ferðamanna í gegnum tíðina.
Hvort Garðskagi sé að fara að fá sína eigin brjóstahaldaragirðingu á eftir að koma í ljós, en það veltur allt á því hvort Bogi leyfi safninu að stækka eða mæti með klippurnar.







