Fréttir

Fánar dregnir í hálfa stöng í Reykjanesbæ
Fimmtudagur 30. júlí 2026 kl. 11:50

Fánar dregnir í hálfa stöng í Reykjanesbæ

Reykjanesbær minnist tónlistarmannsins Gunnars Þórðarsonar af virðingu en hann er genginn veg allrar veraldar. Vilhjálmur Árnason, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, lýsir honum sem einum af „sonum Keflavíkur“ sem hafi átt ómetanlegan þátt í að skapa tónlistarsögu bæjarins.

„Gunnar flutti í Keflavík átta ára gamall, var einn af sonum Keflavíkur og átti ómetanlegan þátt í að móta þá einstöku tónlistarsögu sem gerir Reykjanesbæ að Bítlabænum. Lög hans og tónlist munu lifa áfram í hjörtum landsmanna um ókomin ár,“ skrifar Vilhjálmur í stöðufærslu á samfélagsmiðlum.

Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26
Fánar dregnir í hálfa stöng

Vegna fráfalls Gunnars hefur bæjarstjóri óskað eftir því að íslenski fáninn verði dreginn í hálfa stöng á nokkrum lykilstöðum í sveitarfélaginu í virðingarskyni:

  • Við ráðhús Reykjanesbæjar á Tjarnargötu

  • Á Ásbrú

  • Við aðkomuleiðir að sveitarfélaginu

Að lokum sendir bæjarstjóri samúðarkveðjur fyrir hönd sveitarfélagsins: „Fyrir hönd Reykjanesbæjar votta ég eiginkonu hans, börnum, fjölskyldu, vinum og öllum þeim sem syrgja Gunnar mína dýpstu samúð.“

Eignasalan
Eignasalan