HS Orka kaupir Múlavirkjun
HS Orka hefur gengið frá kaupum á hlutafélaginu Múlavirkjun hf. en félagið á og rekur vatnsafls virkjunina Múlavirkjun í Eyja- og Miklaholtshreppi á Snæfellsnesi. Stærsti eigandi félagsins var Eggert Kjartansson, bóndi á Hofsstöðum. Múlavirkjun var formlega gangsett í nóvember árið 2005 og er uppsett afl hennar 3,2 MW.
Tómas Már Sigurðsson, forstjóri HS Orku, fagnar þessum áfanga en þetta er fyrsta virkjun fyrirtækisins á Vesturlandi:
„Við þekkjum Múlavirkjun vel og vitum að við erum taka við góðu búi. Við höfum átt í farsælu samstarfi við fyrri eigendur og við munum leggja okkur fram um að eiga áfram í góðu samstarfi við samfélagið á Vesturlandi.“
Múlavirkjun miðlar vatni sem tekið er við upptök Straumfjarðará r þar sem hún fellur úr Baulárvallavatni og Hraunsfjarðarvatni. Þrír bændur í héraði stóðu að framkvæmdinni á sínum tíma; Eggert Kjartansson á Hofs stöðum, Ástþór Jóhannsson í Dal og Bjarni Einarsson í Tröðum. HS Orka hefur frá upphafi stýrt allri framleiðslu virkjunarinnar og jafnframt keypt alla orku frá henni.






