Fréttir

Átök um launahækkanir kjörinna fulltrúa í Reykjanesbæ
Mánudagur 27. júlí 2026 kl. 09:36

Átök um launahækkanir kjörinna fulltrúa í Reykjanesbæ

Heitar umræður urðu á fundi bæjarráðs Reykjanesbæjar um ákvörðun varðandi afléttingu á frystingu launa kjörinna fulltrúa. Minnihlutinn gagnrýnir að launin hækki um tæp 21% á sama tíma og kallað er eftir aðhaldi, á meðan meirihlutinn segir um misskilning að ræða og að engin ný ákvörðun hafi verið tekin.

Svör við áður framlagðri fyrirspurn minnihlutans um fjárhagsleg áhrif hækkunarinnar voru lögð fram á fundinum. Málið vakti miklar umræður og var fundarhlé meira að segja boðað í tæpar 15 mínútur á meðan á umfjöllun stóð.

Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26
Minnihlutinn: „Stingur verulega í stúf við almennar launahækkanir“

Fulltrúar Framsóknar og Samfylkingar, þær Díana Hilmarsdóttir og Guðný Birna Guðmundsdóttir, þökkuðu svörin en töldu þau ekki svara meginathugasemd sinni um skort á formlegri pólitískri umræðu áður en ákvörðunin var kynnt.

Í bókun minnihlutans segir:

„Mikilvægt er að ákvarðanir sem varða kjör kjörinna fulltrúa séu teknar með fullu gagnsæi og opinni umræðu. Laun kjörinna fulltrúa eru að hækka um tæp 21% frá og með 1. júlí sem stingur verulega í stúf við almennar launahækkanir.“

Lögðu þær fram nýjar fyrirspurnir þar sem spurt var hvenær og með hvaða hætti pólitísk ákvörðun um afléttingu frystingarinnar (sem staðið hafði frá 2023) var tekin. Einnig spyrja þær hvort meirihlutinn telji það rétt skref við núverandi fjárhagsaðstæður að hækka laun um miðja fjárhagsáætlun án þess að gert hafi verið ráð fyrir því í áætlun ársins.

Meirihlutinn: Launin fylgja reglunum sjálfkrafa

Meirihluti bæjarráðs (fulltrúar Miðflokks og Sjálfstæðisflokks) hafnaði gagnrýninni í sinni bókun og sagði málflutning minnihlutans byggja á misskilningi og röngum forsendum. Þau tóku fram að engin ný ákvörðun hefði verið tekin af hálfu meirihlutans.

Í bókun meirihlutans segir:

„Launakjör kjörinna fulltrúa fylgja gildandi samþykktum sem tengja þau við þingfararkaup og stjórnsýslan framkvæmir þær reglur þegar breytingar verða. Engin sérstök ákvörðun var því tekin af hálfu meirihlutans. Hefði hins vegar átt að víkja frá gildandi reglum og frysta launin hefði þurft sérstaka ákvörðun þar að lútandi.“

Undir bókun meirihlutans skrifa Gunnlaugur Kárason (Miðflokki) ásamt Margréti Þórarinsdóttur og Alexander Ragnarssyni (Sjálfstæðisflokki).

Eignasalan
Eignasalan